
Skatturinn
Skatturinn fer með álagningu og innheimtu skatta, gjalda og tolla auk þess að sinna eftirliti með skattskilum og viðskiptum og flutningum yfir landamæri.
Sérfræðingur á álagningarsviði hjá Skattinum
Skatturinn leitar að áhugasömum sérfræðingi til að starfa með öflugum hópi starfsfólks á álagningarsviði í höfuðstöðvum Skattsins í Katrínartúni í Reykjavík. Meginhlutverk álagningarsviðs er að leggja skatta og gjöld á einstaklinga og lögaðila og sinna þeim verkefnum sem því tengjast, þ.m.t. undirbúningi, þjónustu, eftirliti og afgreiðslu erinda og kæra. Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skoðun á framtölum lögaðila fyrir álagningu m.t.t. skattareglna
- Afgreiðsla á kærum og erindum lögaðila
- Leiðrétting og endurskoðun framtala lögaðila eftir álagningu
- Aðstoð og upplýsingagjöf til skattaaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði lögfræði, viðskiptafræði eða hagfræði (lágmarksmenntun er bakkalár gráða)
- Þekking á bókhaldi og reikningsskilum er æskileg
- Þekking á málsmeðferðarreglum og almennri skattframkvæmd er æskileg
- Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu mál
- Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð
- Rík þjónustulund, jákvæðni og góðir samskiptahæfileikar
- Hreint sakavottorð.
Auglýsing birt23. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Katrínartún 6
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í orkumiðlun
Orkusalan

Samningastjóri
Veitur

Sérfræðingur í áætlanagerð hjá Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi

Féhirðir í Reykjanesbæ - tímabundið starf
Íslandsbanki

Sérfræðingur í launum og kjaramálum
Fjársýslan

Lögfræðingur
Hugverkastofan

Sérfræðingur á hugverkasviði
Hugverkastofan

Bókari,launafulltrúi
Vörukaup ehf

Samskiptastjóri
BRÚ Lífeyrissjóður

Blaðamaður á Viðskiptablaðinu
Viðskiptablaðið

Sérfræðingur í innkaupum
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Innkaupastjóri/Purchasing Manager
Nicopods ehf