
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
Hlutverk og stefna HSS
Heilsugæslusvið HSS sinnir heilbrigðisþjónustu við heilbrigða og sjúka sem ekki dveljast á sjúkrahúsum, sbr. 19.gr. heilbrigðislaga nr. 97/1990 og heilbrigðisáætlun heilbrigðisráðuneytisins. Heilsugæslan skal tryggja grunnþjónustu í heilsugæslu á starfssvæðinu, s.s. almenna læknis- og hjúkrunarþjónustu, vakt- og bráðaþjónustu og forvarnarstarf. Áherslu skal leggja á málaflokka eins og áfengis- og tóbaksvarnir, slysavarnir, geðheilbrigði, hjarta- og heilavernd, næringarráðgjöf, mataræði og krabbameinsvarnir. Þá er rétt að undirstrika mikilvægi þess að efla heimaþjónustu enn frekar og hafa þannig að markmiði að skjólstæðingar, bæði aldraðir og sjúkir, geti dvalið heima hjá sér sem allra lengst.
Stefna HSS er að veita Suðurnesjabúum lögbundna heilsugæslu í heimabyggð, að unnt sé að bóka tíma samdægurs á heilsugæslu ef skjólstæðingur óskar þess og að biðtími á biðstofu eftir bókuðum tíma verði ekki meira en 30 mínútur að jafnaði.
Undir sjúkrahússvið fellur sjúkrahúsþjónusta sem greinist í lyflækningar og endurhæfingaþjónustu annars vegar og skurðlækningar og fæðingarhjálp hins vegar. Sjúkrahúsið er ætlað sjúku fólki til vistunar, þar sem læknishjálp, hjúkrun og allur aðbúnaður er í samræmi við reglugerðir og lög um heilbrigðisþjónustu. Nú er starfrækt hjúkrunardeild í Grindavík í tengslum við sjúkrahúsið og legudeild á 2. hæð í Reykjanesbæ. Á ljósmæðravakt eru fjögur rúm.
Sjúkrahúsið hefur á að skipa sérgreinalæknum bæði í skurðlækningum og lyflækningum. Þá er rekin slysa- og bráðamóttaka í nánum tengslum við heilsugæslusvið.
Stefna HSS er að uppfylla 70-80% af þjónustuþörf íbúa Suðurnesja fyrir sjúkrahúsþjónustu. Sérhæfð og flókin þjónusta verður eftir sem áður sótt til Landspítala háskólasjúkrahúss.
https://hss.is/index.php/um-hss/hss/hlutverk-og-stefna

Sérfræðingar í heimilslækningum
Lausar eru til umsóknar stöður sérfræðilækna í heimilislækningum á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Um er að ræða framtíðarstarf og æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Mikil uppbygging er á HSS og innleiðing á stefnu stofnunarinnar byggðri á Heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum með frumkvæði, faglegan metnað og jákvætt hugarfar til að taka þátt í uppbyggingunni.
Á HSS er lögð áhersla á mennsku, myndugleika og góða menningu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Móttaka sjúklinga á heilsugæslu, þátttaka í kennslu og þjálfun ásamt umbótavinnu í samvinnu við yfirlækni. Vaktir í boði.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskt lækningaleyfi
- Sérfræðileyfi í heimilislækningum
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
- Skipulagshæfni, sjálfstæði og öguð vinnubrögð
- Góð færni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Geta til að starfa í þverfaglegu teymi
- Íslenskukunnátta
- Góð enskukunnátta
Auglýsing birt19. ágúst 2026
Umsóknarfrestur14. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Skólavegur 6, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (5)

Læknir óskast til starfa hjá SÁÁ
SÁÁ

Sérfræðilæknir á Erfða- og sameindalæknisfræðideild
Landspítali

Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali

Taktu þátt í að móta framtíð læknisþjónustu á Suðurlandi
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Viltu vera á skrá? Læknir með lækningaleyfi
Landspítali