
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
LSR er stéttarfélagstengdur lífeyrissjóður sem tryggir sjóðfélögum sínum og fjölskyldum þeirra víðtæk réttindi.
LSR er traustur lífeyrissjóður og sjóðfélögum örugg samfylgd.

Senior-forritari
Viltu leika lykilhlutverk í stafrænni uppbyggingu stærsta lífeyrissjóðs landsins? Hefur þú reynslu af þróun og samþættingu nútíma hugbúnaðarkerfa? Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins leitar nú að útsjónarsömum forriturum sem eru tilbúnir að taka með okkur næstu skref í stafrænni vegferð sjóðsins.
LSR hefur sett sér metnaðarfulla stefnu í upplýsingatækni og framundan eru fjölbreytt og spennandi verkefni hjá samhentum og metnaðarfullum hópi sem leiðir stafræn uppbyggingarverkefni sjóðsins. Við þann hóp viljum við bæta „full-stack“ forritara með mikla reynslu og þekkingu á hugbúnaðargerð
Menntunar- og hæfniskröfur
Alhliða forritunarkunnátta og sérfræðiþekking í upplýsingatækni.
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. B.Sc. gráða í tölvunarfræði, verkfræði eða sambærilegt. M.Sc. gráða er kostur.
Mikil þekking á framendavefforritun. Þarf að hafa þekkingu á Typescript / Javascript og hafa unnið með frameworks því tengdu (t.d. Angular eða React).
Góð færni í skilgreiningarmálum, s.s. HTML, CSS, SASS / LESS, XML og JSON.
Mikil þekking á bakendaforritun í .NET (C#, .NET/.NET Core), smíði vefþjónusta og gagnagrunna (SQL-fyrirspurnarmál).
Þekking á þróun, smíði og viðhaldi kerfa í skýjaumhverfi (Azure er kostur).
Geta og vilji til að vinna vel í teymi.
Þekking á Agile-aðferðafræðum, kóðastýringu með Git og nútímaþróun (CI/CD þróunarferlar) nauðsynleg.
Helstu verkefni og ábyrgð
Lykilákvarðanatökur við uppbyggingu hugbúnaðarlausna.
Hönnun, þróun og innleiðing hugbúnaðar.
Samþætting lykilkerfa.
Uppbygging á innra tækniumhverfi.
Auglýsing birt14. desember 2022
Umsóknarfrestur9. janúar 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Engjateigur 11, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AgileBakendaforritunInnleiðing ferlaMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðSkipulagVefforritunÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í gagnalausnum
Lífeyrissjóður verzlunarmanna

Senior Full Stack / AI forritari
Lagaviti ehf.

Full Stack / AI forritari
Lagaviti ehf.

Tæknifólk í Framlínuþjónustu
OK

Senior Software Engineer
Laki Power

Robotics Software Engineer
Laki Power

Microsoft ráðgjafi
KPMG á Íslandi

CapEx PMO Systems Specialist
Alvotech hf

Business Central forritari
Wise lausnir ehf.

Software Developer | Embla Medical
Embla Medical | Össur

Verkefnastjóri- Gögn & Gervigreind
Fagkaup ehf

AI Engineer
50skills