Artasan
Artasan
Artasan

Séní í samfélagsmiðlum og efnisgerð

Artasan leitar að skapandi og drífandi einstaklingi til að leiða efnisgerð og sýnileika vörumerkja okkar á samfélagsmiðlum.

Við leitum að manneskju sem fylgist með trendum, hefur næmt auga fyrir góðu efni og veit hvernig á að segja sögu sem fangar athygli. Einstaklingi sem hefur gaman af því að skapa, prófa nýjar hugmyndir og sjá þær verða að veruleika.

Hér færðu tækifæri til að vinna með öflug vörumerki, skapa efni sem skiptir máli og hafa raunveruleg áhrif á hvernig þúsundir Íslendinga upplifa vörurnar okkar á hverjum degi.

Hvernig lítur hefðbundinn vinnudagur út?

🎬 Búa til myndbönd, reels, stories og annað efni sem vekur athygli.

📱 Sjá um og þróa samfélagsmiðla Artasan.

💡 Fá hugmyndir og framkvæma þær. Frá fyrsta skrefi yfir í lokaútgáfu.

🎥 Vera fyrir framan myndavélina þegar það á við eða stjórna upptökum þegar það hentar.

🤝 Vinna með áhrifavöldum, UGC-höfundum og öðrum skapandi einstaklingum.

📈 Fylgjast með því sem virkar, mæla árangur og gera enn betur næst.

🚀 Prófa nýja hluti áður en allir hinir gera það.

Þú hentar vel í starfið ef...

Þú hefur gaman af samfélagsmiðlum og efnisgerð.

✅ Þú skilur hvað fær fólk til að stoppa og horfa.

✅ Þú getur tekið upp, klippt og sett saman flott efni.

✅ Þú ert hugmyndarík/ur/t og bíður ekki eftir leyfi til að gera hlutina.

✅ Þú hefur gott vald á íslensku og getur skrifað texta sem fólk vill lesa.

✅ Þú hefur áhuga á heilsu, vellíðan og vörum sem bæta daglegt líf.

✅ Canva, Meta, CapCut eða önnur sambærileg verkfæri eru þínir helstu vinir.

Af hverju Artasan?

📈 Hjá Artasan færð þú tækifæri til að vinna með öflug vörumerki, taka þátt í fjölbreyttum verkefnum og hafa raunveruleg áhrif á hvernig við nálgumst markaðssetningu og fræðslu til neytenda.

🚀 Við bjóðum upp á metnaðarfullt starfsumhverfi þar sem frumkvæði, sköpunarkraftur og nýjar hugmyndir fá að njóta sín.

Umsóknarfrestur er til og með 10. september 2026

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og ástæðu umsóknar.

Nánari upplýsingar veita: Bryndís Hákonardóttir, markaðsstjóri Artasan – [email protected] og Hildur Guðjónsdóttir, mannauðsstjóri – [email protected]

Hjá Artasan starfar samhentur og kraftmikill hópur í sölu- og markaðssetningu á heilsuvörum og lausasölulyf sem stuðla að bættri heilsu og vellíðan almennings. Artasan er hluti af fyrirtækjasamstæðu Veritas ásamt Distica, Fánu, STOÐ og Vistor.

Auglýsing birt27. ágúst 2026
Umsóknarfrestur10. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Suðurhraun 12A, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.CanvaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Markaðssetning á netinuPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar