Akstur og flutningar ehf
Akstur og flutningar ehf
Akstur og flutningar ehf

Sendibílstjóri

Bílstjóri óskast í fjölbreyttan sendibílaakstur.

Fyrst og fremst er leitað að manni í fullt starf. En einnig kemur til greina að ráða manneskju í hlutastarf og/eða mann eða strák í sumarafleysingu. (sjá nánar um möguleg hlutastörf neðst í þessari auglýsingu)

Umsækjendur þurfa að vera hraustir, þjónustulundaðir og íslenskumælandi með hreint sakavottorð.

Starfslýsing

Aksturinn snýst bæði um reglulegar ferðir fyrir fastakúnna og einnig tilfallandi vinnu í gegnum sendibílastöð. Gott er ef bílstjórinn treystir sér til að stökkva milli bíla. Sé semsagt fær um að keyra bæði smærri sendibíl og stærri kassabíl með lyftu.

Vinnan gegnum sendibílastöðina er mjög fjölbreytt. Allt frá smærri pökkum og stökum brettum sem þurfa að komast frá a til b (t.d. húsgögn, heimilistæki, sorp o.fl.) yfir í stærri flutninga og einstaka búslóðir.

Viðkomandi myndi fá góða þjálfun og vera með mér í bíl fyrstu vikuna.

Föstu verkefnin snúast um að keyra matarvagna á smærri sendibíl milli fyrirtækja tvisvar á dag. Annars vegar frá um ca 10.45-11.15 og aftur ca 14.00-15.00. Sú vinna er bara á virkum dögum. Aðra hvora helgi er svo föst vinna fyrir bakarí milli 6-9. Sú vinna er unnin á miðstærðar kassabíl með lyftu og snýst um að rúlla stæðum inn í matvörubúðir og taka tómar stæður tilbaka.

Þar sem ég þarf að manna helgarnar verður um vaktafyrirkomulag að ræða.

Vinnutími semsagt ca 8-17 virka daga og ca 6-17 aðra hvora helgi

Um verður að ræða 4-5 vaktir á viku eftir samkomulagi og þar af innifalin önnur hver helgi.

Vinnuplanið yrði þá eitthvað í þessum dúr:

vika 1 mán þri fö lau su

vika 2 þri mi fi

með möguleika á aukavöktum þegar fram líða stundir ef óskað er

Kröfur:

Meirapróf (eða gamla prófið/5 tonna réttindi) er æskilegt og reynsla af akstri í atvinnuskyni er sömuleiðis kostur. Varkárni, yfirvegun og hæfni í að fara vel með ökutækin eru stórt atriði ásamt kurteisi og hæfni í mannlegum samskiptum. Æskilegur aldur ca 25-55 ára. Annað slagið eru burðarverkefni hluti af vinnudeginum. Því þarf viðkomandi að vera hraustur og þokkalegur til heilsunnar. Ekki að það sé endilega stór hluti af heildarmyndinni en það má reikna með því sem hluti af pakkanum að geta tekið aðeins á því.

Mjög góð kaffiaðstaða og fínn félagskapur.

Sumar

p.s. Ef ráðin verður afleysinga bílstjóri í sumar mun þetta sama vaktafyrirkomulag gilda fyrir þann starfsmann. Það er ekki ósennilegt og eru fyrirspurnir varðandi þann möguleika velkomnar.

Hlutastarf

p.p.s.. Vegna nægra verkefna í augnablikinu kemur sterklega til greina að ráða (a.m.k. tímabundið) alhliðaða bílstjóra / aðstoðarmanneskju í hlutastarf ca fjóra og hálfan tíma á dag.

Sú vinna væri fíftí fiftí vinna á litlum sendibíl (meirapróf ekki nauðsyn) og hinsvegar bílaþvottur og alhliða handlang. Það myndi vera frá 10:30 til 15:00 þrjá til fjóra virka daga á viku.

Menntunar- og hæfniskröfur
Færni í íslensku
Auglýsing birt17. mars 2021
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Dugguvogur 15, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÚtkeyrslaPathCreated with Sketch.Vöruflutningar
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar