
Hér&Nú
Hér&Nú er ein af elstu og virtustu auglýsinga- og markaðsráðgjafastofum landsins. Allt frá 1990 hefur stofan haft frumkvæði í hönnun, strategískri hugsun og árangursmiðuðum auglýsingum.
Hér&Nú er hönnunardrifin auglýsingastofa. Í markaðssamskiptum opnar skapandi hönnun nýjar leiðir. Í krafti hennar mótum við frumkvæðisdrifin samskipti við viðskiptavini og vinnum þannig sameiginlega úr reynsluheimi okkar.
Samvinna sem á að vara til langs tíma hefst með greiningu og markvissri markmiðasetningu. Herferðir eru ágætar en þær eru orrustur. Stríðið um neytendur er þúsund ára stríð. 360° aðferðarfræði okkar er hægt að útskýra í löngu máli eða benda á metfjölda árangursverðlauna sem staðfestingu á því hvernig aðferðarfræðin virkar.
En við erum ekki bara auglýsingastofa. Við veitum þjónustu á borð við:
- Auglýsingar
- Almannatengsl
- Birtingar
- Nýmiðlun

Samfélagsmiðla leiðtogi (Head of Social)
Hér&Nú leitar að skapandi og söludrifnum sérfræðingi á sviði samfélagsmiðla. Starfið krefst sérhæfðar þekkingar á samfélagsmiðlum, birtingastrategíum, auglýsingum og birtingum þeirra. Reynsla af sambærilegum störfum er skilyrði.
Hugmyndin er að viðkomandi geti teki starfið föstum tökum og leitt þann hluta birtingadeildar Hér&Nú er snýr að samfélagsmiðlum.
Viðkomandi þarf einnig að búa að þekkingu á stafrænni miðlun og framúrskarandi samkiptahæfni sem nýtist í starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stýra samfélgasmiðladeild og stefnu Hér&Nú.
- Starfsmannastjórnun innan deildar.
- Stefnumótun, umsjón og endurgjöf til viðskiptavina.
- Greina áhrif aðgerða, aðlaga þær og uppfæra til að hámarka árangur.
- Vinna að áætlun og skilvirkni í nýtingu birtingafjármagns.
- Fylgjast með, læra, þróa og vinna að aukinni þekkingu á leiðandi tækni.
- Vinna með hugmynda- og hönnurteymi að þróun herferða og auglýsinga.
- Kynningar og skýrslugerðir fyrir kúnna sem og öflun nýrra viðskiptavina.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af birtingastjórnun á samfélagsmiðlum.
- Að lágmarki 5 ára vinnureynsla við samfélagsmiðla.
- Reynsla og þekking á auglýsingabirtingum og markaðsmálum.
- Góð þekking á tölfræði og tölfræðigreiningu auk getu til að vinna með tölfræðigreiningartæki.
- Ástríða fyrir auglýsingamálum og gott auga fyrir straumum og stefnum.
- Miklir samskiptahæfileikar og geta til að vinna í hóp.
- Hugrekki í því hlutverki að tala fyrir framan annað fólk.
Auglýsing birt24. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Laun (á mánuði)700.000 - 1.000.000 kr.
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Bankastræti 9, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FacebookFramkoma/FyrirlestarFrumkvæðiGoogleGoogle AdsGoogle AnalyticsGoogle CloudGoogle Data StudioInstagramLeiðtogahæfniSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (8)

Rauði krossinn óskar eftir öflugum aðila í fjáröflun
Rauði krossinn á Íslandi

Pikkoló leitar að skapandi samfélagsmiðlafulltrúa!
Pikkoló ehf.

Verkefnastjóri viðburða og Hlégarðs
Mosfellsbær

Markaðs- og viðburðafulltrúi
Austurbæjarbíó

Head of Education
50skills

Education Producer
50skills

Íshokkísamband Íslands leitar að starfsmanni í 40% tímabundið starf
Íshokkísamband Íslands

Markaðssérfræðingur
Lauf Cycles hf.