

Sálfræðingur fullorðinna - Heilsugæslan Sólvangi
Við hjá Heilsugæslunni Sólvangi leitum að metnaðarfullum sálfræðingi til að sinna sálfræðiþjónustu fyrir fullorðna, 18 ára og eldri. Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi hefji störf 1. maí nk. eða samkvæmt nánara samkomulagi
Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf á spennandi vettvangi, fyrir sálfræðing sem hefur áhuga á að taka þátt í framþróun í geðheilsumálum innan heilsugæslu og vill stuðla að heilbrigðri líðan einstaklinga. Sálfræðingur starfar í þverfaglegu teymi með sálfræðingum, félagsráðgjafa, læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru fagfólki í skemmtilegu starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun.
Heilsugæslunni er ætlað að veita íbúum almenna, samfellda og aðgengilega heilbrigðisþjónustu. Starfsemi heilsugæslunnar er í örri framþróun þar sem áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.
Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is)
- Sálfræðiþjónusta fyrir einstaklinga 18 ára og eldri
- Greining, mat og meðferð á geðrænum vanda, gagnreynd sálfræðimeðferð og ráðgjöf
- Einstaklings- og hópmeðferð
- Námskeiðahald, ráðgjöf og fræðsla
- Handleiðsla og þjálfun nema í klínískri sálfræði æskileg
- Þátttaka í þróun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
- Samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir s.s. Landspítala og félagsþjónustu
- Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum
- Leyfi frá landlækni til að starfa sem sálfræðingur er skilyrði
- 3 ára starfsreynsla af klínísku starfi er æskileg
- Þekking og reynsla af gagnreyndum sálfræðiaðferðum
- Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
- Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
- Reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
- Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Góð enskukunnátta æskileg
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur
Íslenska
Enska













