Fangelsismálastofnun ríkisins
Fangelsismálastofnun ríkisins

Sálfræðingur - Fangelsismálastofnun

Við leitum að framsýnum og lausnamiðuðum sálfræðingi í faglegt teymi á meðferðarsviði Fangelsismálastofnunar.

Á meðferðarsviði starfa sálfræðingar, félagsráðgjafar og vímuefnaráðgjafar sem vinna í nánu samstarfi við annað starfsfólk stofnunarinnar og heilbrigðisstarfsfólk innan fangelsa. Áhersla er á þverfaglega teymisvinnu og jákvæð viðhorf til skjólstæðinga.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kortlagning áhættuhegðunar og gerð meðferðaráætlana

  • Sértæk meðferðarvinna til að draga úr ofbeldishegðun/hegðunarvanda

  • Einstaklingsmeðferð og hópafræðsla fyrir skjólstæðinga

  • Fræðsla og leiðsögn til starfsfólks fangelsa

  • Meðferð, stuðningur og leiðsögn til skjólstæðinga á reynslulausn eða á öðrum stigum afplánunar

  • Samráð og samstarf við aðrar stofnanir og þjónustuaðila

  • Þátttaka í umbótastarfi, þróunarverkefnum og þverfaglegu samstarfi

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt starfsleyfi sálfræðinga

  • Reynsla af vinnu með fólki með fjölþættan vanda

  • Þekking og reynsla á sviði réttarsálfræði er kostur

  • Reynsla af áhættumatsgerð, hugrænni atferlismeðferð, áhugahvetjandi samtalstækni (Motivational interviewing) og áfallamiðaðri nálgun æskileg

  • Sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfni og lausnamiðuð nálgun er mikilvæg

  • Góð samstarfshæfni, jákvætt hugarfar, metnaður og áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi

  • Góð tölvufærni og þekking á One CRM skjalakerfinu er kostur

  • Góð íslensku og enskukunnátta

Auglýsing birt27. apríl 2026
Umsóknarfrestur11. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Laugavegur 166, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar