
Auðnast
Auðnast var stofnað árið 2014 í þeim tilgangi að þjónusta atvinnulífið um allt er varðar heilsu og félagslegt öryggi starfsfólks. Sama ár var Auðnast klíník opnuð en þar er boðið upp á þverfaglega meðferð, handleiðslu og ráðgjöf fyrir einstaklinga, fjölskyldur og hópa við úrlausn mála. Með samstarfi við Auðnast eru vinnustaðir að stuðla að traustu öryggiskerfi heilsunnar, móta jákvæða innri menningu, auka sjálfbærni og styrkja færni einstaklinga til að takast á við fjölbreytt umhverfi og aðstæður.
Sálfræðingur
Auðnast ehf auglýsir eftir öflugum liðsauka í Auðnast teymið frá og með 1. september sem vill starfa í heilsutengdum verkefnum á sviði forvarna, meðferðar og fræðslu.
Auðnast er framsækið fyrirtæki sem leggur áherslu á heilsu og líðan starfsfólks á vinnustöðum. Hjá Auðnast starfar þverfaglegt meðferðarteymi sem sinnir bæði fyrirtækjum og einstaklingum. Nánari upplýsingar má finna á á heimasíðu www.audnast.is
Menntunar- og hæfniskröfur
Löggild réttindi sálfræðings
Góð samskipta- og skipulagsfærni
Hæfni til að starfa í hóp
Sjálfstæði í starfi
Frumkvæði og faglegur metnaður
Hreint sakavottorð
Helstu verkefni og ábyrgð
Sálfræðiviðtöl og önnur almenn sálfræðistörf
Fræðsla í fyrirtækjum
Greining á málum
Þátttaka í teymisvinnu
Auglýsing birt13. maí 2022
Umsóknarfrestur27. maí 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Auðbrekka 10, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMetnaðurSálfræðingurSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar

