Sala & Vöruþróun - Hópar
Við erum að leita eftir einstaklingi sem hefur góða skipulagshæfni og er glöggur með tölur.
Hugmyndin er að geta tekið ábyrgð og haft umsjón með hópum í fyrirtækinu.
Betra er að viðkomandi hafi reynslu í ferðaþjónustu og skipulagningu en er þó ekki skilyrði.
Luxury Adventures hefur sérhæft sig í sérsniðnum ferðum í Norðurlöndunum síðan 2003.
Starfið felur í sér að sjá um hópa aðallega á Íslandi. Það þarf að setja upp ferðirnar, reikna út verð, bóka hjá birgjum og sjá um alls kyns hluti á meðan á ferðinni stendur.
Það er mikið unnið í Excel og því gott að kunnáttan sé góð þar.
Þegar mikið álag er í einstaklingferðum fyrirtækisins þarf starfsmaðurinn að geta unnið þar líka.
Þegar hægist um gefst stundum tími til að vinna í vöruþróun hópa-, einstaklings og viðburðaferða.
Vinnutími er sveigjanlegur í báðar áttir og mikilvægt að vita að stundum þarf að vera hægt að vinna lengur og stundum styttri og á móti erum við sveigjanlegir þegar vinnutími getur flökktað.
Excel vinnsla.
Skipulag.
Talnagleggni.
Gott er að hafa háskólapróf en ekki skilyrði.
Góð enskukunnátta og reynsla að vinna í Excel er skilyrði.
Símakostnaður borgaður
Hádegismatur niðurgreiddur