Listaskóli Mosfellsbæjar
Listaskóli Mosfellsbæjar
Listaskóli Mosfellsbæjar

Rytmískur söngkennari

Listaskóli Mosfellsbæjar skiptist í tónlistardeild sem er stærsta deildin innan skólans, Skólahljómsveit Mosfellsbæjar, Leikfélag Mosfellssveitar og Myndlistarskóla Mosfellsbæjar. Þessir aðilar vinna saman að öflugri listkennslu í sveitarfélaginu, svo og öflugu lista- og menningarstarfi.

Aðal starfsstöð tónlistardeildar er í húsnæði Listaskólans á 3. og 4. hæð að Bjarkarholti 2, en skólinn starfar einnig í mjög góðu samstarfi í öllum grunnskólum bæjarins. Leitum við eftir söngkennara í rytmískri söngdeild sem myndi kenna í Bjarkarholti 2. Um 30-40% starfshlutfall er að ræða.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Menntunar- og hæfniskröfur

Háskólapróf í rytmískri söngkennslu eða rytmískum söng og/eða námskeið í rytmískri söngtækni auk að lágmarki framhaldsprófs í rytmískum söng, ásamt reynslu í rytmískri söngkennslu. 
Góð færni í samvinnu og samskiptum
Faglegur metnaður og áhugi á sköpun, starfsþróun og fjölbreytni í skólastarfi.
Góð íslenskukunnátta

Auglýsing birt1. júní 2026
Umsóknarfrestur15. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Bjarkarholt 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.Söngur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar