

Fagstjóri í sköpun
Fagstjóri í sköpun í Urriðabóli, Kauptúni 5
Leikskólinn Urriðaból er 6 deilda leikskóli staðssettur að Kauptúni 5 í fallegu og fjölbreyttu umhverfi við Urriðaholti 210 Garðabæ. Í leikskólanum dvelja börn á aldrinum 1 árs til 6 ára.
Einkunnarorð leikskóans eru: Heilbrigð sál í hraustum líkama.
Við tökum vel á móti nýju og áhugasömu starfsfólki og leggjum áherslu á jákvætt og uppbyggilegt starfsumhverfi sem er í mótun.
Við leitum að jákvæðu, stundvísu, ábyrgum og heiðarlegu starfsfólki til að ganga til liðs við metnaðarfullan og fjölbreyttan starfsmannahóp leikskólans.
Nánari upplýsingar um starfið veita Heiðar Örn Kristjánsson, leikskólastjóri, Hjördís Diljá Gunnlaugsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 570-4920. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið [email protected] eða [email protected]
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um
Fagstjóri í sköpun getur verið sérhæfður í myndlistakennslu, tónlist eða leiklist. Unnið er með börnunum í litlum hópum að fjölbreyttri sköpun á aldrinum 1-6 ára.
- Áhersla á umhyggjusamt námsumhverfi
- Efla hlutverka- og ímyndunarleik barnanna
- Fjölbreytt tækifæri til sköpunar í hvetjandi umhverfi
- Kennaramenntun
- Háskólapróf á sviði lista og sköpunar
- Uppeldismenntaður starfsmaður
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum er æskileg
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Heilsuhvetjandi starfsumhverfi
- Samgöngustyrkur
- Viðverustefna
- Heilsustyrkur
- Vinnustytting
- Metnaðarfullt starfsumhverfi
- 3 heilsusamlegar máltíðir á dag
- Starfsmannaafsláttur á leikskólagjöldum
Íslenska










