
Akureyri - Berjaya Iceland Hotels
Akureyri - Berjaya Iceland Hotels er vinalegt hótel sem opnaði sumarið 2011 með fallega innréttuð herbergi og frábæra aðstöðu á besta stað í bænum. Sundlaugin er hinum megin við götuna og stutt ganga í miðbæinn. Útsýnið er til fjalla og skíðaævintýrið er handan við hornið ásamt því sem hótelið býður upphitaðar skíðageymslur. Hótelgarðurinn er einstaklega notalegur bæði sumar og vetur, með arineldi, skinnábreiðum og yljandi drykk, eða hvers vegna ekki að prófa gómsætt High Tea að breskri fyrirmynd.
Á hótelinu starfar samhentur hópur fólks í líflegu og alþjóðlegu umhverfi.

Rekstrarstjóri Berjaya Akureyri
Félagið leitar að drífandi leiðtoga til að halda utan um daglegan rekstur á hóteli félagsins á Akureyri. Hótelið telur 99 herbergi auk þess sem þar er rekinn veitingastaðurinn Aurora Restaurant. Starfið felur í sér yfirumsjón með daglegum rekstri, stuðla að sterku teymisstarfi þvert á deildir með það að markmiði að besta rekstrarárangur og þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegur rekstur hótelsins til að tryggja samræmda og skilvirka heildarstarfsemi hótelsins
- Samræma og tengja saman daglegan rekstur milli deilda og stuðla að sterku teymisstarfi þvert á hótelið með það að markmiði að besta þjónustu og rekstrarárangur
- Umsjón með daglegum mannauðsmálum, vaktaskipulagi, þjálfun starfsfólks, gæðum og þjónustu
- Aðkoma að ýmsum mannauðsmálum í samvinnu við hótelstjóra og mannauðssvið
- Fylgja eftir rekstraráætlunum í nánu samstarfi við hótelstjóra
- Stuðla að góðum starfsanda með jákvæðu viðmóti og vera fyrirmynd í samskiptum og vinnubrögðum
- Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast rekstri hótelsins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Haldbær reynsla af hótelstörfum, sérstaklega innan gistideildar
- Reynsla af stjórnun og mannauðsmálum er kostur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Miklir leiðtogahæfileikar og geta til að byggja upp jákvæða vinnustaðamenningu
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð og sterk ábyrgðarkennd
- Lausnamiðuð nálgun og hæfni til að vinna undir álagi
- Góð viðskiptavitund og hæfni til að vinna með lykilmælikvarða
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
- Góð almenn tölvukunnátta
- Framúrskarandi færni í íslensku og ensku, í töluðu og rituðu máli
Auglýsing birt27. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Þingvallastræti 23, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiBreytingastjórnunDrifkrafturFagmennskaFrumkvæðiJákvæðniLeiðtogahæfniMannauðsstjórnunMannleg samskiptiRáðningarSjálfstæð vinnubrögðSölumennskaSveigjanleikiTeymisvinnaVaktaskipulagVinna undir álagiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Tvær stöður þjónustufulltrúa við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Restaurant Supervisor – Hótel Jökulsárlón
Hótel Jökulsárlón

Framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs
Veðurstofan

Operations Manager
BusTravel Iceland ehf.

Móttöku og þjónustufulltrúi við Móttökustöðina á Strönd
Sorpstöð Rangárvallasýslu

Skrifstofumaður/ Teymisstjóri í ritaraþjónustu dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga
Landspítali

Deildarstjóri frístundastarfs
Frístundaklúbburinn Úlfurinn

Óskum eftir rekstrarstjóra
Sólbaðsstofan Sælan

Vöruþróun og framleiðsla ferða á utanlandssviði
Ferðaþjónusta bænda hf.

Starfsmaður í afgreiðslu hjá Vélanaust
Vélanaust

Starfsmaður í verkstæðismóttöku
Vélrás

Sales Coordinator - Flóra Hotels
Flóra Hotels