

Rekstrarstjóri
Dekkjasalan leitar eftir reynslumiklum einstakling í móttöku og daglegan rekstur á dekkjaverkstæði í Dalshrauni. Starfið felur í sér fjölbreytta vinnu við hjólbarðaþjónustu, sölu og afgreiðslu á tengdum vörum.
Við leitum að einstaklingi sem hefur ríka þjónustulund, góða leiðtogahæfileika og brennandi áhuga á því að skapa góða upplifun fyrir viðskiptavini.
Þetta er spennandi tækifæri fyrir þann sem vill taka þátt í að byggja upp vinsælt dekkjaverkstæði í Hafnarfirði.
Vinnutími er frá 8:00-17:00 og um helgar eftir samkomulagi.
Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá með mynd ásamt umsagnaraðilum og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.
Nánari upplýsingar veita:
Halldór Jóhannsson I [email protected]
Dekkjasalan er rótgróið fyrirtæki sem selur felgur og dekk um allt land .Dekkjasalan hóf starfsemi 2010. Einkunnarorð Dekkjasölunnar eru: Við leysum það.
- Stýra daglegum rekstri verkstæðisins
- Mannaforráð verkstæðisins
- Gerð vaktaplana og skipulag vinnu starfsfólks
- Stuðla að jákvæðri liðsheild og góðu starfsumhverfi
- Umsjón með lager- og birgðahaldi
- Tryggja framúrskarandi þjónustu og jákvæða upplifun viðskiptavina
- Umsjón með netpöntunum og afgreiðslu
- Önnur tilfallandi verkefni tengd rekstri verkstæðisins
- Góð þjónustulund og samskiptahæfileikar
- Haldgóð reynsla af sambærilegum verkefnum
- Þjónustulund og jákvætt viðmót
- Rík hæfni til samstarf og samskipta
- Skipulagshæfni og frumkvæði
- Leiðtogahæfileikar og geta til að hvetja aðra
- Hreint sakavottorð
- Bílpróf
- Góð íslensku- og enskukunnáttu
Íslenska
Enska







