
Háskólinn á Hólum
Háskólinn á Hólum er öflugur háskóli sem býður upp á gæðanám á grunn- og framhaldsnámsstigi háskóla sem og öflugt rannsóknarstarf. Háskólinn er miðstöð þekkingar á þremur sérsviðum sem eru hestafræði, ferðamálafræði og fiskeldis-, sjávar- og vatnalíffræði.
Gildi skólans eru fagmennska, virðing og sköpun.
Reiðkennari við Háskólann á Hólum
Laust er til umsóknar tímabundið starf reiðkennara við hestafræðideild Háskólans á Hólum.
Hestafræðideild háskólans veitir fagmenntun á sviði hestafræða, tamninga, reiðmennsku og reiðkennslu og vinnur að þróun og nýsköpun fræðasviðsins í rannsóknastarfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Verkleg og bókleg reiðkennsla og tengd verkefni
- Þjálfun á hestakosti háskólans
- Önnur verkefni í samráði við deildarstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reiðkennaramenntun
- Farsæl reynsla af reiðkennslu á efstu stigum
- Fjölþættur og góður árangur í þjálfun hrossa og keppni
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
- Jákvætt viðmót, metnaður og hæfni til að vinna í teymi
- Góð skipulagshæfni
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Auglýsing birt21. október 2025
Umsóknarfrestur31. október 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hólar 146440, 551 Sauðárkrókur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)
