

Rafmagnsverkfræðingur - Bionic Solutions
Viltu taka þátt í verkefnum með það að leiðarljósi að bæta hreyfanleika fólks?
Hefur þú ástríðu fyrir hönnun á rafbúnaði? Viltu þróa tæki sem hjálpa fólki að lifa lífi sínu án takmarkana?
Rafmagnsteymið í þróunardeild Össurar leitar að rafmagnsverkfræðingi með reynslu til að taka þátt í hönnun og þróun á rafstýrðum gerviliðum.
Við bjóðum
• Tækifæri til að nýta háþróaða tækni sem bætir hreyfigetu og lífsgæði fólks
• Að vera hluti af teymi sem vinnur að markmiði með skýran tilgang
• Tækifæri til að efla þína hæfni og sérfræðiþekkingu
Starfið felur í sér vinnu með örgjörva, mótora, rafhlöður, þráðlaus samskiptatæki og fjölbreytta skynjara til að þróa gerviliði fyrir hné og fætur. Helstu verkefni eru hönnun rafeindarása, frumgerðasmíði, prófanir og flutningur í framleiðslu
• Góð hæfni í teymisvinnu og mannlegum samskiptum
• Reynsla af hönnun og uppsetningu rafeindarása
• Meistaragráða í rafmagnsverkfræði eða sambærilegu fagi; BS-gráða með viðeigandi reynslu kemur einnig til greina
• Reynsla af notkun rannsóknartækja og mælitækni
• Góð færni í ensku
• Frábær hæfni í bilanagreiningu
• Sjálfstæð vinnubrögð
-
Líkamsræktarstyrkur
-
Samgöngustyrkur
-
Líkamsræktaraðstaða, hjólageymsla og golfhermir
-
Mötuneyti með fjölbreyttu úrvali af mat
-
Árleg heilsufars-mæling og ráðgjöf
-
Árlegur sjálfboðaliðadagur
- Starfsþróun
-
Öflugt félagslíf







