
Skálholtstaður
Skálholtsstaður er einn merkasti sögustaður og hafði staðurinn gríðarleg áhrif á sögu þjóðarinnar. Núverandi Skálholtsdómkirkja var vígð árið 1963 og er tíunda kirkjan sem reist hefur verið á staðnum. Undir kirkjunni er grafhvelfing þar sem meðal annars er varðveitt 800 ára gömul steinkista Páls biskups Jónssonar. Á svæðinu má einnig sjá fornleifar sem sýna húsaskipan í Skálholti á 17. og 18. öld. Skálholtsstaður er vinsæll viðkomustaður gesta á Gullna hringnum og er í dag lifandi kirkju- og menningarsetur með tónleikum, ráðstefnum og ýmsum viðburðum allt árið. Þar er einnig hótel og veitingastaður sem þjónar gestum og ferðamönnum. Umhverfi staðarins er friðsælt og einkennist af víðáttumiklu landslagi Suðurlands. Fjölmargar gönguleiðir eru í nágrenninu og staðurinn hentar vel til íhugunar og kyrrðar. Skálholt er vinsæll áfangastaður ferðamanna sem vilja kynnast sögu, trú og menningu Íslands á einum stað.
Skálholt is one of the most important historical sites in Iceland and had a profound influence on the nation’s history. The present Skálholt Cathedral was consecrated in 1963 and is the tenth church built on the site. Beneath the cathedral is a crypt where, among other things, the 800-year-old stone coffin of Bishop Páll Jónsson is preserved. Archaeological remains in the area also reveal the layout of buildings in Skálholt during the 17th and 18th centuries. Skálholt is a popular stop on the Golden Circle route and today functions as a vibrant religious and cultural center, hosting concerts, conferences, and various events throughout the year. There is also a hotel and restaurant on site serving visitors and travelers. The surroundings are peaceful and characterized by the wide-open landscapes of South Iceland. Numerous walking paths are located nearby, making the area well suited for reflection and tranquility. Skálholt is a popular destination for travelers who wish to experience Iceland’s history, faith, and culture in one place.

Ráðsmaður og umsjónarmaður fasteigna
Skálholtsstaður óskar eftir kraftmiklum, handlögnum, fjölhæfum og metnaðarfullum einstaklingi til að sinna eftirliti, viðhaldi og daglegri umsjón fasteigna Skálholtsstaðar.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Iðnmenntun sem nýtist í starfi
• Vinnuvélaréttindi á dráttavélar og minni jarðvinnuvélar
• Frumkvæði, útsjónarsemi, sjálfstæði og góð yfirsýn
• Drifkraftur, ábyrgð og metnaður í starfi
• Sveigjanleiki og þjónustulund
• Lipurð í mannlegum samskiptum
• Góð íslensku og ensku kunnátta
• Tölvukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
• Daglegt eftirlit og umsjón fasteigna staðarins
• Viðgerðir og viðhald fasteigna og tækja
• Eftirlit með verktökum og iðnaðarmönnum vegna stærri verkefna
• Umhirða, sláttur og viðhald útisvæða
• Snjómokstur og hálkuvarnir staðarins
• Gerð verkáætlana í samstarfi við framkvæmdastjóra
Auglýsing birt17. janúar 2022
Umsóknarfrestur7. febrúar 2022
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Skálholt 167166, 801 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðVinnuvélaréttindiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar




