Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg

Ráðgjafi í virknimálum ungs fólks

Fjölskyldusvið Árborgar auglýsir stöðu ráðgjafa í virknimálum ungs fólks. Um er að ræða tímabundna stöðu í að minnsta kosti ríflega ár með möguleika á framlengingu. Á fjölskyldusviði starfar öflugur þverfaglegur og samheldinn hópur starfsfólks. Á sviðinu er lögð áhersla á þverfaglegt samstarf skóla-, velferðar- og frístundaþjónustu. Mikil áhersla er lögð á snemmtækan stuðning, lausnaleit, þróun úrræða og fræðslu.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa tæplega 12.000 íbúar í fjölmenningarlegu samfélagi og er mikið af ungu fólki sem býr í sveitarfélaginu.

Ráðgjafi í virknimálum ungs fólks vinnur að málefnum ungs fólks í samræmi við markmið fjölskyldusviðs Árborgar um að veita þjónustu á fyrri stigum í nærumhverfinu út frá heildarsýn á félagslegum aðstæðum hvers og eins. Ráðgjafinn vinnur að því að byggja upp tengingar á milli mismunandi þjónustustofnana og skoða hvernig hægt er að vinna saman að því að auka virkni ungs fólks. Ráðgjafi þarf að hafa yfirsýn yfir bjargir nærsamfélagsins, sérstaklega þau úrræði sem eru líkleg til að auka félagslega þátttöku ungs fólks. Hann metur aðstæður þeirra sem til deildarinnar leita og veitir þeim aðstoð eftir því sem við á og í samræmi við gildandi lög og reglur hverju sinni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ráðgjöf, þjónusta og stuðningur við ungt fólk frá 16 ára aldri með því markmiði að auka virkni og bæta líðan
  • Gerð einstaklingsáætlana og eftirfylgd mála
  • Umsjón hópastarfs og námskeiða fyrir ungt fólk samráði við ráðgjafa í velferðarþjónustu og forstöðumanna frístundahúsa
  • Teymisvinna og þverfaglegt samstarf
  • Vinnur að tölfræðilegum upplýsingum
  • Tekur virkan þátt í þróun og stöðumati verkefnisins
  • Er talsmaður verkefnis út á við og i samvinnu við verkefnastjóra með kynningar 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði félagsvísinda eða annað háskólanám sem nýtist í starfi
  • Þekking og reynsl á sviði einstaklingsráðgjafar og/eða hópastarfs
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Skipulagshæfileikar og vandvirkni í starfi
  • Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
  • Lipurð í mannlegum samskiptum, jákvæðni, sveigjanleiki, áreiðanleiki og stundvísi
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur
Auglýsing birt26. febrúar 2024
Umsóknarfrestur11. mars 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Vandvirkni
Starfsgreinar
Starfsmerkingar