Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Ráðgjafar á nýtt stuðningsheimili fyrir unglinga á höfuðborgarsvæðinu

Barna- og fjölskyldustofa óskar eftir að ráða ráðgjafa á nýtt stuðningsheimili fyrir unglinga á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða tvær 100% stöður í vaktavinnu sem heyra undir forstöðumann og deildarstjóra heimilisins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umönnun,  gæsla og dagleg samskipti við unglinga.  

  • Einstaklingsbundinn stuðningur við unglinga í samvinnu við deildarstjóra. 

  • Samskipti og samvinna við foreldra og samstarfsaðila. 

  • Vinna að daglegri virkni unglinga s.s.  vinnu,  skóla og tómstundum  

  • Vinna eftir þeirri meðferðarnálgun og verklagsreglum sem unnið er eftir á stuðningsheimilinu. 
  • Önnur verkefni í samráði við yfirmenn. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla og/eða menntun sem að mati forstöðumanns nýtist í starfi, t.d. í  meðferðar-, tómstunda-, íþróttastarfi eða öryggisgæslu. 

  • Umsækjendur þurfa að geta tileinkað sér þá meðferðarnálgun og verklagsreglur sem unnið er eftir á stuðningsheimilinu. 

  • Góð færni í mannlegum samskiptum. 

  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulag í vinnubrögðum. 

  • Gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði. 

  • Gild ökuréttindi. 

  • Einnig er lögð áhersla á aðra persónulega eiginleika, svo sem sveigjanleika, jákvætt viðhorf til skjólstæðinga og áhuga á að starfa með ungmennum. 

Auglýsing birt20. ágúst 2025
Umsóknarfrestur1. september 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skálatún, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar