
Eimskip
Hlutverk Eimskips er að veita áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum á sjálfbæran hátt með árangur viðskiptavina að leiðarljósi. Við höfum verið traustur samstarfsaðili í alþjóðlegum flutningum frá árinu 1914 og rekum 56 skrifstofur í 20 löndum með um 1.700 starfsmönnum. Við tryggjum viðskiptavinum okkar áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum meðal annars með áætlunarsiglingum og rekstri gáma- og frystiskipa í Norður-Atlantshafi, hafnarþjónustu, landflutningum, vöruhúsa- og frystigeymsluþjónustu og alþjóðlegu skrifstofuneti í flutningsmiðlun.
Hjá Eimskip er lögð sérstök áhersla á að skapa jákvæða menningu með sterkri liðsheild, tækifærum til þróunar, hvatningu til að sýna frumkvæði, opnum skoðanaskiptum og góðri miðlun upplýsinga.

Öryggis- og forvarnafulltrúi Austurlandi
Eimskip Austurlandi auglýsir eftir þjónustuliprum og drífandi einstaklingi í starf öryggis- og forvarnafulltrúa.
Öryggis- og forvarnafulltrúi ber ábyrgð á forvarnastarfi gegn slysum og tjónum í samvinnu við starfsstöðvar á Austurlandi og öryggis- og tjónadeild. Hann hefur einnig umsjón með greiningum slysa og tjóna og er hluti af fyrsta viðbragði við slysum og öðrum alvarlegum atburðum sem kunna að verða í starfssemi fyrirtækisins.
Starfið heyrir undir svæðisstjóra en megin starfsstöð er Mjóeyrarhöfn. Aðrar starfsstöðvar eru Höfn í Hornafirði, Djúpivogur, Reyðarfjörður, Neskaupstaður og Egilsstaðir.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun og reynsla sem nýtist í starfi
Þekking eða reynsla af sambærilegum verkefnum er kostur
Gott vald á ritaðri og talaðri íslensku og ensku
Frumkvæði, öguð vinnubrögð og greiningarhæfni
Góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
Góð almenn tölvukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Utanumhald um skráningu slysa
Þátttaka í forvarnateymi félagsins
Fræðsla, ráðgjöf og eftirlit vegna flutninga á hættulegum varningi
Fræðsla um öryggis- og forvarnamál
Greining og rannsóknir á frávikum og slysum
Áhættumat og innri úttektir á starfsstöðvum á Austurlandi
Náið samstarf við stjórnendateymi á Austurlandi
Önnur tilfallandi verkefni í samráði við svæðisstjóra
Auglýsing birt16. nóvember 2022
Umsóknarfrestur11. desember 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Nesbraut 5, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Hæfni
MetnaðurSamviskusemiSkipulagStundvísiVinnsla rannsóknargagnaÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (1)
