Íþróttamiðstöðvar Mosfellsbæjar
Íþróttamiðstöðvar Mosfellsbæjar
Íþróttamiðstöðvar Mosfellsbæjar

Öflugt framtíðarstarfsfólk í íþróttamiðstöðvar

Mosfellsbær óskar eftir framtíðarstarfsfólki í íþróttamiðstöðvar bæjarins

Starfsfólk íþróttamiðstöðvanna eru andlit þeirra út á við og hefur það lykilhlutverk að veita öllum sem þær sækja frábæra þjónustu í hreinu, snyrtilegu og öruggu umhverfi.

Um er að ræða 100% stöðu í vaktavinnu. Viðkomandi þurfa að geta hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

 

  • Þjónusta við viðskiptavini, nemendur, kennara, íþróttaiðkendur og þjálfara þeirra
  • Bað – og sundlaugavarsla
  • Þrif
  • Afgreiðsla
Menntunar- og hæfniskröfur

Hæfniskröfur

  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Hreint sakavottorð er skilyrði
  • Viðkomandi þurfa að vera jákvæðir, með mjög góða samskiptahæfileika og ríka þjónustulund
  • Reynsla af því að vinna með börnum og unglingum er mikilvæg (leikskóli, skóli, íþróttaþjálfun)
  • Hæfni til þess að vinna á uppbyggilegan hátt í teymi er mikilvæg
  • Krafa er gerð um gilt hæfnispróf sundstaða skv. reglugerð um öryggi á sundstöðum. Boðið er upp á námskeið fyrir alla starfsmenn við upphaf ráðningar
  • Þekking og reynsla af skyndihjálp er mikilvæg
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
  • Samviskusemi og stundvísi
Auglýsing birt10. ágúst 2024
Umsóknarfrestur20. ágúst 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Lækjarhlíð 1, 270 Mosfellsbær
Skólabraut 1, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar