Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Næringarfræðingur í SELMU-teymi

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar auglýsir eftir næringarfræðingi í 80-100% starf til að byggja upp og sinna næringarráðgjöf fyrir heimaþjónustu í Reykjavík. Næringarfræðingurinn mun tilheyra þverfaglegu öldrunarteymi, SELMU. SELMA er þjónusta sem hefur það að markmiði að styðja enn frekar við sjálfstæða búsetu aldraðra í eigin húsnæði og sinnir teymið sérhæfðri meðferð aldraðra með vitjunum í heimahús.

Áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða og sveigjanlega þjónustu til að bæta líðan og almenn lífsgæði hrumra aldraðra og gera þeim kleift að búa lengur heima. SELMA hefur aðsetur í húsnæði Læknavaktarinnar í Austurveri og starfar þvert á alla heimaþjónustu Reykjavíkur. Teymið vinnur í nánu samstarfi við heimahjúkrun og endurhæfingarteymi Reykjavíkurborgar að þróun og uppbyggingu á auknu eftirliti, mati og meðferð skyndilegra og/eða flókinna heilsufarsvandamála hrumra einstaklinga í heimahúsi.

Menntunar- og hæfniskröfur
Næringarfræðingur með íslenskt starfsleyfi.
Framhaldsmenntun í klínískri næringarfræði æskileg.
Góð þekking, færni og reynsla af mati og ráðgjöf vegna næringarástands hrumra einstaklinga.
Þekking og reynsla af sjúkraskrárkerfinu SÖGU æskileg.
Framúrskarandi hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði, skipulagsfærni og hæfni til að vinna sjálfstætt.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þróun og skipulag á nýrri þjónustu næringarfræðings til skjólstæðinga heimahjúkrunar í Reykjavík.
Umsjón og framkvæmd á fræðslu og stuðningi við starfsmenn heimahjúkrunar vegna næringar hrumra í heimahúsi.
Mat á næringarástandi, uppsetning og eftirfylgd næringarmeðferðar fyrir skjólstæðinga heimahjúkrunar.
Þátttaka í teymisvinnu SELMU um þróun á bættri nálgun við hruma í heimahúsi.
Auglýsing birt9. júní 2022
Umsóknarfrestur24. júní 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar