Íslandshótel
Íslandshótel
Íslandshótel

Móttökustjóri | Reception Manager

    Ertu að leita þér að skemmtilegri vinnu í dínamísku og alþjóðlegu umhverfi? Hilton Reykjavík óskar eftir að ráða metnaðarfullan móttökustjóra í fullt starf.

    Starfið felur í sér yfirumsjón með daglegum rekstri og verkefnum gestamóttöku, svo sem sölu og þjónustu, áætlunum, starfsmannamálum, dagsuppgjörum, nýtingu hótelsins og að gæðakröfum sé fullnægt ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.

    Menntun og hæfniskröfur:

    • Háskólamenntun í ferðamálafræðum eða hótelstjórnun kostur
    • Talsverð reynsla af sambærilegum störfum skilyrði
    • Færni í samskiptum, jákvætt viðmót og rík þjónustulund
    • Umtalsverð krafa um frumkvæði, nákvæmni og skipulag í vinnubrögðum
    • Mjög góðir söluhæfileikar
    • Tungumál; gott vald á íslensku og ensku skilyrði, önnur tungumál kostur
    • Almenn tölvukunnátta, góð þekking á Opera kostur

    Staðsetningin í hjarta borgarinnar, nálægt Laugardalnum, íþrótta- og afþreyingarsvæðum og miðbæ Reykjavíkur, gerir hótelið að eftirsóttum valkosti fyrir viðskiptaferðalanga, hópa og ferðamenn.

    Öflug liðsheild Íslandshótela starfar samkvæmt eftirfarandi gildum

    Fagmennska – Hugrekki – Samvinna - Umhyggja

    Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.

    ------------------

      Are you looking for a fun job in a dynamic and international environment? Hilton Reykjavík wishes to hire an ambitious Reception Manager for a full time position.

      The job includes overseeing the day-to-day operations and tasks of the reception department such as sales and service, plans, matters of personnel, daily settlements, utilisation of the hotel and that quality requirements are met in addition to other incidental tasks.

      Education and qualification requirements:

      • University education in tourism or hotel management is beneficial
      • Considerable experience of similar jobs is essential
      • Considerable communicational skills, a positive outlook, and a great service attitude
      • Great initiative, accuracy, and organized working methods
      • Very good sales skills
      • Languages: a good grasp of Icelandic and English, proficiency in other languages is beneficial
      • Good general computer skills and knowledge of Opera is beneficial

      Located in the heart of Reykjavík, close to Laugardalur, sports and recreational facilities, and the city centre, the hotel is a popular choice for business travellers, groups, and leisure travellers alike.

      The values of Íslandshótel are:

      Professionalism - Courage - Cooperation - Care

      All inquiries and applications are handled confidentially.

        Auglýsing birt25. september 2026
        Umsóknarfrestur9. október 2026
        Tungumálahæfni
        EnskaEnska
        Nauðsyn
        Framúrskarandi
        ÍslenskaÍslenska
        Nauðsyn
        Meðalhæfni
        Staðsetning
        Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík
        Starfstegund
        Starfsgreinar
        Starfsmerkingar