Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Móttökuritari - Heilsugæslan Grafarvogi

Heilsugæslan Grafarvogi leitar að skemmtilegum, jákvæðum og lífsglöðum einstaklingi sem finnst gaman að taka á móti fólki í starf móttökuritara. Um er að ræða starf í lifandi umhverfi þar sem reynir á samskiptahæfni og þjónustulund viðkomandi. Ef þér finnst gaman að tala við fólk og veita framúrskarandi þjónustu þá viljum við gjarnan fá að hitta þig.

Um er að ræða 50-100% tímabundið starf til sex mánuða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. febrúar nk. eða eftir nánari samkomulagi.

HH Grafarvogi leggur áherslu á þverfaglega og góða samvinnu fagstétta með hag skjólstæðingsins að leiðarljósi, á stöðinni eru starfandi sérfræðingar í heimilislækningum, hjúkrunarfræðingar, sálfræðingar, ritarar og ljósmæður. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Símsvörun, bókanir og móttaka skjólstæðinga

  • Uppgjör í lok dags

  • Móttaka tímapantana í afgreiðslu

  • Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinnar Flokkun á pósti og rafrænum sendingum ásamt skönnun og frágangi gagna

  • Aðstoða hjúkrunarfræðinga eftir þörfum

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Nám sem nýtist í starfi

  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Jákvæðni og rík þjónustulund

  • Reynsla af móttökuritarastarfi skilyrði

  • Reynsla af Sögukerfi skilyrði

  • Nákvæm og skipulögð vinnubrögð

  • Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg

  • Íslenskukunnátta skilyrði

  • Góð almenn enskukunnátta æskileg

Fríðindi í starfi

Stytting vinnuvikunar

Heilsustyrkur

Auglýsing birt12. janúar 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hraunbær 110, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar