Mörk hjúkrunarheimili
Mörk hjúkrunarheimili
Mörk hjúkrunarheimili

Mörk hjúkrunarheimili - Sjúkraliði á geðeiningu

Við á Mörk hjúkrunarheimili erum að bæta við þann góða hóp sem er starfandi við heimilið og leitumst eftir sjúkraliða á geðeiningu heimilsins.

Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt þar sem við leggjum mikla áherslu á góða teymisvinnu.

Hjúkrunarfræðingur er alltaf í húsinu til ráðgjafar og stuðnings.

Starfshlutfall og vaktafyrirkomulag eftir samkomulagi.

Hæfniskröfur
Íslenskt sjúkraliðaleyfi
Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni
Góð íslenskukunnátta

Fríðindi í starfi
Aðgangur að heilsustyrk
Stytting vinnuvikunnar
Öflugt starfsmannafélag

Greitt er eftir kjarasamningi Sjúkraliðafélags Íslands og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.

Á Grundarheimilinum er unnið samkvæmt Eden hugmyndafræðinni.

Hjá okkur vinnur stór og samheldinn hópur starfsmanna að því að hlúa að öldruðum af alúð.

Virðing, vinátta og vellíðan eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.

Nánari upplýsingar:


Mannauðsdeild Grundarheimilanna
[email protected]

Við hlökkum til að heyra frá þér !

Auglýsing birt9. október 2025
Umsóknarfrestur16. október 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Suðurlandsbraut 66, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar