
Terra hf.
Terra er líflegur og fjölbreyttur vinnustaður. Hjá félaginu starfa um 260 einstaklingar á starfsstöðvum á nokkrum stöðum á landinu. Alla daga vinnum við af dugnaði og eljusemi að því að gera góða hluti fyrir umhverfið.
Við veitum fjölbreytta þjónustu á sviði umhverfismála, einkum á sviði úrgangsstjórnunar og endurvinnslu. Frá 1984 hefur Terra lagt áherslu á að þjóna fyrirtækjum, sveitarfélögum og einstaklingum á hagkvæman og umhverfisvænan hátt þar sem tekið er fullt tillit til aðstæðna á hverjum stað og mismunandi þarfa viðskiptavina. Lögð er áhersla á að koma öllum þeim efnum sem falla til í viðeigandi farveg og aftur inn í hringrásarhagkerfið.
Við leggjum mikið upp úr fjölskylduvænu vinnuumhverfi, sterkri liðsheild og jákvæðum og góðum starfsanda. Við erum með öflugt starfsmannafélag sem heldur fjölbreytta viðburði yfir allt árið.

Meiraprófsbílstjóri - Hafnarfjörður
Við leitum að öflugum, áreiðanlegum og þjónustulunduðum einstaklingi með meiraprófsréttindi til að sinna mikilvægu hlutverki í daglegum rekstri og vinna með öflugu teymi samstarfsfólks í höfuðstöðvum okkar í Hafnarfirði.
Starfið felur í sér akstur og flutninga innan svæðis fyrirtækisins, þar sem unnið er í nánu samstarfi við vélamenn og aðra starfsmenn við tilfærslu, losun og meðhöndlun gáma.
Viðkomandi mun jafnframt sinna þjónustu fyrir aðrar deildir á svæðinu eða utan þess, eftir þörfum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Akstur, flutningur og losun gáma innan starfssvæðis
- Samvinna við vélamenn og aðra starfsmenn á svæðinu
- Þjónusta við aðrar deildir fyrirtækisins
- Eftirlit með búnaði og öryggi við framkvæmd verkefna
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meirapróf C, CE er kostur
- Jákvæðni, þjónustulund og samskiptafærni
- Skipulagshæfi, lausnahugsun og frumkvæði
- Íslenskukunnátta er kostur en enskukunnátta skilyrði
Auglýsing birt12. júní 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Berghella 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniMeirapróf CSamviskusemiÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Starf í framleiðslueldhúsi - bílstjóri
Kjötkompaní ehf.

Meiraprófsbílstjóri óskast Framtíðarstarf.
Jarðtækni

Reykjavík: Bílstjóri á tunnuþvottabíl (C réttindi)
Íslenska gámafélagið ehf.

Cleaning Camper Vans
Campeasy

Sölufulltrúi í framtíðarstarf
Gæðabakstur

Bílstjóri í flotdeild
Steypustöðin

Vöruhús / lager
Icetransport

Bílstjóri óskast (meirapróf nauðsynlegt)
Fiska.is Asian supermarket

Meiraprófsbílstjóri - Tímabundið starf
Tæki.is

Steypubílstjóri á Selfossi - Tímabundið
Steypustöðin

Afgreiðsla - Lager Vöruhús
Vatnsvirkinn ehf

Kranabílstjóri á nýjan kranabíl
Ísbor ehf