Satt Restaurant
Satt Restaurant

Matreiðslumenn á Satt Restaurant/ Chef

Icelandair hótel Reykjavík Natura leitar að öflugum matreiðslumönnum sem hafa metnað til að veita gestum hótelsins framúrskarandi þjónustu og góða upplifun.
Hæfniskröfur:

  • Sveinspróf í matreiðslu æskilegt
  • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Snyrtimennska, stundvísi og sveigjanleiki
  • Jákvæðni og vilji til að takast á við fjölbreytt verkefni


Starfssvið:

  • Ábyrgð á starfsstöð í eldhúsi
  • Ábyrgð á umgengni, umhirðu og þrifum eldhúss í samræmi við kröfur heilbrigðiseftirlitsins.
  • Önnur tilfallandi verkefni



Fullt starf – vinnur vaktir skv. vaktaskrá hverju sinni.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til og með 15.09.2021
Nánari upplýsingar um starfið veitir Paolo Brian Luis Guingon, [email protected]

Icelandair hótel er fyrirtæki sem starfar í alþjóðlegu umhverfi þar sem lögð er áhersla á samvinnu, sveigjanleika og frumkvæði í starfi. Hjá fyrirtækinu starfar samhentur ­hópur með sameiginleg markmið, þar sem borin er virðing fyrir gestum, samstarfsmönnum og náttúrunni

Auglýsing birt2. september 2021
Umsóknarfrestur15. september 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Nauthólsvegur 52 , 102 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar