Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Matreiðslumaður - Sumarafleysing

Hrafnista Laugarási óskar eftir að ráða matreiðslumenn í sumarafleysingu í framleiðslueldhúsið. Starfshlutfall og vaktir samkomulagsatriði.

Eldhúsið í Laugarási þjónar öll heimili Hrafnistu sem eru sjö talsins.

Eldhúsið er eitt stærsta framleiðslueldhús landsins eftir viðamiklar endurbætur og stækkun upprunalega eldhússins á Hrafnistu í Laugarásnum í nóvember árið 2019. Með stækkun eldhússins fóru framleiðsluafköst úr 850 í 1.800 skammta á sólarhring fyrir Hrafnistuheimilin. Auk stækkunar og skipulagsbreytinga á nýtingu rýmisins voru nær öll tæki til starfseminnar endurnýjuð eins og nauðsynlegt var vegna aukinna framleiðsluafkasta.

Í eldhúsum Hrafnistuheimilanna er matreiddur fjölbreyttur heimilsmatur. Flest allt sérfæði sem þörf er á er eldað á Hrafnistu og leitast er við að maturinn henti sem flestum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Matargerð
  • Umsjón með pöntunum
  • Stuðla að góðum samskiptum og góðum starfsanda
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í matreiðslu
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð vinnubrögð og geta til þess að starfa í teymi
  • Faglegur metnaður
Auglýsing birt18. febrúar 2026
Umsóknarfrestur1. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Brúnavegur 13, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar