
Matartíminn
Matartíminn er í eigu Sölufélags garðyrkjumanna. Við sérhæfum okkur í þjónustu við mötuneyti, með sérstakri áherslu á leik- og grunnskóla.
Frá því að Matartíminn var stofnaður árið 2017 höfum við lagt okkur fram við að auka hlut íslenskra afurða í matarræði landsmanna — ekki síst með því að koma skólabörnum snemma á bragðið með fersku og safaríku íslensku grænmeti.
Sérfæði
Mikilvægur hluti af starfsemi okkar er öflugt ofnæmiseldhús. Þar vinnur sérhæft matreiðslufólk með reynslu og þekkingu á matreiðslu sérfæðis af öllu tagi. Við leggjum áherslu á að þjóna öllum sem þurfa á sérfæði að halda, hvort sem það er vegna ofnæmis eða lífsskoðunar. Matartíminn hefur ávallt veganrétti í boði fyrir þá sem þess óska.
Matreiðslufólkið okkar lumar á ýmsum bragðgóðum leiðum til að uppfylla sérþarfir í mataræði, hvort sem þær stafa af fæðuofnæmi eða trúarbrögðum. Við viljum spanna allt litrófið með fjölbreyttu framboði af hollum og bragðgóðum mat.
Íslenskt grænmeti
Auk þess að bjóða upp á ferskt grænmeti allt árið þá leggjum við okkur fram við að fullnýta uppskeru grænmetisbænda og draga úr matarsóun. Vörur íslenskra grænmetisbænda eru allar kolefnisjafnaðar og stutt að sækja í nærliggjandi sveitir.
Öllu hráefni er pakkað í höfuðstöðvum SFG áður en öflugt dreifikerfi Matartímans tekur við og kemur sendingum til viðkomandi mötuneyta. Þar tekur starfsfólk okkar við hráefninu, eldar matinn og framreiðir.

Matartíminn - Tímabundnar afleysingar í eldhúsi
Um er að ræða afleysinga störf í eldhúsi í grunn- og leikskólum, þ.e. að leysa af í eldhúsum þar sem starfsfólk vantar.
Í boði er 100% starf tímabundið frá október - 28. nóvember.
Nauðsynlegt er að viðkomandi tali íslensku eða ensku.
Reynsla af eldhússtörfum er krafa.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hitun/eldun og framsetning á mat. Frágangur eftir mat. Eftirfylgni með gæðamálum s.s. hitastigsskráningar, þrifaskráningar og mótttaka á aðföngum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslensku eða ensku kunnátta. Samskiptahæfni, samviskusemi og gleði. Reynsla úr mötuneyti og heilsuhreysti.
Auglýsing birt6. október 2025
Umsóknarfrestur19. október 2025
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Skólaliði og frístundaleiðbeinandi í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Starfsmaður í útkeyrslu
Ráðlagður Dagskammtur

Matreiðslumaður/Chef/Cook
Iceland Parliament hótel

Sushi snillingur! Kokkur & afgreiðsla
UMAMI

Matreiðslumaður / Matráður
IKEA

Matreiðslumaður í Barnaskóla Kársness
Barnaskóli Kársness

Álftanesskóli - mötuneyti
Skólamatur

Við leitum af hressum einstaklingum í eldhús, bar og móttöku !
Oche Reykjavik

Kanntu að Tikka og Masala? Almennar stöður og vaktstjórar í boði.
Indian Spice

Aðstoð í eldhúsi / Kitchen assistant - Satt kitchen Natura
Reykjavík Natura - Berjaya Iceland Hotels

Leiðtogi mötuneytis í Blöndustöð
Landsvirkjun

Starfsmaður í eldhúsi
Ás styrktarfélag