
OMAX
Árið 2013 höfðum við þá hugsjón að geta boðið Íslendingum upp á hollari kosti. Draumurinn varð að veruleika og í dag finnur þú vörurnar okkar í öllum betri verslunum landsins.
Markaðsfulltrúi
Við leitum að skapandi og drífandi markaðsmanneskju í 50% starf til að ganga til liðs við teymið okkar. Þetta er frábært tækifæri fyrir einstakling sem vill öðlast reynslu í fjölbreyttu markaðsstarfi og vinna bæði með hugmyndavinnu, hönnun og greiningu.
Helstu verkefni
- Gerð markaðsefnis fyrir stafræna miðla og samfélagsmiðla
- Grafísk vinnsla og hönnun á efni fyrir herferðir
- Skipulagning og framkvæmd markaðsherferða
- Eftirfylgni og greining á árangri herferða
- Samstarf við teymið um hugmyndavinnu og kynningar
Við leitum að einstaklingi sem:
- Hefur áhuga á markaðsmálum og stafrænum miðlum
- Kann á helstu hönnunarforrit (t.d. Canva, Adobe Creative Suite eða sambærilegt)
- Hefur góða tilfinningu fyrir framsetningu og hönnun
- Getur unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði
- Hefur áhuga á greiningu og mælingum á árangri markaðsstarfs
- Er skipulagður og lausnamiðaður
Kostur ef viðkomandi:
- Hefur reynslu af samfélagsmiðlum og efnisgerð
- Þekkir til Meta Ads, Google eða sambærilegra kerfa
- Hefur reynslu af ljósmyndun eða myndbandsvinnslu
Við bjóðum:
- Sveigjanlegt 50% starf
- Skemmtilegt og skapandi vinnuumhverfi
- Tækifæri til að læra og þróast í markaðsmálum með stórum vörumerkjum.
- Fjölbreytt verkefni og raunverulega reynslu
Áhugasamir eru hvattir til að senda ferilskrá og stutt kynningarbréf.
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Auglýsing birt18. maí 2026
Umsóknarfrestur26. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Tranavogur 3, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AdWordsAuglýsingagerðCanvaEmail markaðssetningFacebookFacebook Business ManagerGoogleGoogle AdsGreinaskrifInstagramLeitarvélabestun (SEO)MailchimpMarkaðsgreiningMarkaðsmálMarkaðssetning á netinu
Starfsgreinar
Starfsmerkingar



