Barbara ehf.
Barbara ehf.
Barbara ehf.

Markaðs- og samfélagsstjóri Barböru

Barbara leitar að öflugri, skapandi og sjálfstæðri manneskju til að sjá um markaðs- og samfélagsmál.

Barbara er nýtt fræðslu- og samfélagsverkefni sem hefur það markmið að gera fjármál og fjárfestingar aðgengilegri fyrir almenning. Við leitum að manneskju sem getur hjálpað okkur að koma Barböru á framfæri, byggja upp sterkt samfélag og halda utan um daglega framkvæmd verkefnisins.

Um starfið
Starfið hentar manneskju sem vill vera hluti af spennandi uppbyggingu og hefur áhuga á að taka virkan þátt í að móta rödd, ímynd og samfélag Barböru.

Þetta er ekki hefðbundið 9–5 starf. Við leitum að manneskju sem hefur frumkvæði, orku og metnað til að taka þátt í verkefni sem getur vaxið hratt.

Áhugasamir sendi ferilskrá og stutta kynningu á sér, reynslu sinni og af hverju Barbara höfðar til þeirra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • sjá um samfélagsmiðla Barböru
  • búa til og birta efni fyrir Instagram, TikTok, LinkedIn og aðra miðla
  • taka þátt í framleiðslu á hljóðvarpi og myndbandsefni
  • halda utan um skráningar á námskeið og viðburði
  • fylgja eftir þátttakendum fyrir og eftir námskeið
  • taka þátt í uppbyggingu Barböru-samfélagsins
  • hugsa skapandi leiðir til að ná til nýrra þátttakenda
  • aðstoða við skipulagningu námskeiða, viðburða og fræðslu
  • skrifa texta, auglýsingar og kynningarefni á góðri íslensku
Menntunar- og hæfniskröfur
  • kann vel á samfélagsmiðla
  • hefur gott auga fyrir efni og framsetningu
  • getur hugsað út fyrir boxið
  • er sjálfstæð, drífandi og lausnamiðuð
  • skrifar góða íslensku
  • hefur áhuga á fjármálum, samfélagi og fræðslu
  • þolir hraða uppbyggingu, óreglulegan vinnutíma og mikla vinnu þegar mikið er að gera
  • er tilbúin að taka þátt í að byggja eitthvað nýtt frá grunni

Reynsla af hlaðvarpsgerð, myndbandsvinnslu, samfélagsmiðlum, markaðssetningu eða viðburðahaldi er mikill kostur.

Auglýsing birt15. maí 2026
Umsóknarfrestur20. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Reykjavík, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar