Kvika banki hf.
Kvika banki hf.
Kvika banki hf.

Mannauðsráðgjafi

Vilt þú sameina áhuga þinn á mannauðsmálum og tækni í fjölbreyttu starfi?

Við leitum að tæknisinnuðum og drífandi mannauðsráðgjafa sem sér tækifæri í að nýta gögn, sjálfvirkni og gervigreind til að þróa og einfalda mannauðsferla og bæta upplifun starfsfólks.

Mannauðsteymið er lítið en skilvirkt og mun viðkomandi því sinna fjölbreyttum verkefnum; allt frá fræðslumálum, ráðningum og starfsþróun, til gagnagreininga og þróun tæknilausna innan mannauðsmála.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróun mannauðsferla með tækni, sjálfvirkni og gervigreind.
  • Greining mannauðs- og launagagna og skýrslugerð.
  • Umsjón með mannauðskerfi, fræðslukerfi og gerð rafræns fræðsluefnis.
  • Þátttaka í ráðningum og nýliðaþjálfun.
  • Framkvæmd og eftirfylgni viðhorfs- og púlskannana.
  • Viðhald á starfaflokkunarkerfi og framkvæmd reglulegra jafnlaunagreininga.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Brennandi áhugi á mannauðsmálum, tækni og þróun mannauðsferla.
  • Reynsla af Excel, Power BI og gervigreindarlausnum er skilyrði.
  • Haldbær reynsla af störfum við mannauðsmál.
  • Reynsla af greiningu og framsetningu mannauðs- og launagagna
  • Þekking á Eloomi og Articulate eða sambærilegum lausnum.
  • Þekking á Kjarna mannauðs- og launakerfi er kostur.
  • Skipulagshæfni, greiningarhæfni, sjálfstæði og lausnamiðuð hugsun.
  • Rík þjónustulund, sveigjanleiki og góð samskiptahæfni.
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta.
Auglýsing birt25. nóvember 2026
Umsóknarfrestur6. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar