Apótekarinn
Apótekarinn
Apótekarinn

Lyfsöluleyfishafar á höfuðborgarsvæðinu.

Lyfsöluleyfishafar óskast

Langar þig að leiða öflugt apótek og taka þátt í að móta virðisaukandi þjónustu fyrir samfélagið? Apótekarinn leitar að metnaðarfullum leyfishöfum sem vilja taka frumkvæði, byggja upp sterk teymi og tryggja faglega og persónulega þjónustu við viðskiptavini.

Helstu verkefni:

  • Dagleg stjórnun og rekstur apóteksins
  • Fagleg ábyrgð á afgreiðslu lyfja í samræmi við lög og reglur um lyfsölu
  • Leiða öflugt teymi og tryggja framúrskarandi þjónustu
  • Þróun lyfjafræðilegrar þjónustu í samræmi við stefnu Lyf og heilsu

Hæfniskröfur:

  • Háskólapróf í lyfjafræði og gilt starfsleyfi
  • Að lágmarki 2ja ára starfsreynsla sem lyfjafræðingur
  • Leiðtogahæfileikar, skipulagshæfni og drífandi hugarfar
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund

Afhverju Apótekarinn?

Hjá Apótekaranum vinnum við saman að því að gera heilsu fólks betri á hverjum degi. Við trúum á að skapa vinnustað þar sem starfsfólki líður vel, finnur tilgang og fær tækifæri til að vaxa í starfi. Það er hluti af því sem gerir okkur að bláa liðinu. Við höfum það að leiðarljósi að gera allt fyrir líðan starfsmanna og viðskiptavina.

Við leggjum áherslu á að starfsfólk njóti góðs af því að vera hluti af okkar teymi. Þess vegna bjóðum við meðal annars upp á:

  • Heilsueflandi vinnustað
  • Samkeppnishæf laun
  • Íþróttastyrk
  • Heilsufarsmælingar fyrir starfsfólk og maka
  • Vinnuskó
  • Afsláttarkjör hjá Apótekaranum og Augastað
  • Tækifæri til fræðslu og starfsþróunar
  • Öflugt starfsmannafélag

Nánari upplýsingar um starfið veita Fríður S. Þormar, mannauðs- og gæðastjóri [email protected] og Sigrún Erlendsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum [email protected]. Umsóknarfrestur er til 3. maí næstkomandi.

Um Apótekarann:

Apótekarinn er hluti af Lyf og heilsu en félagið rekur í dag 27 lyfjaverslanir. Félagið rekur einnig 4 lyfjaútibú. Auk lyfjaverslana rekur félagið tvær gleraugnaverslanir undir merkinu Augastaður, Lyfjaskömmtun Apótekarans og Gamla apótekið, sem sérhæfir sig í framleiðslu á kremum, áburðum og olíum. Alls starfa um 300 manns hjá félaginu.

Félagið leggur áherslu á heilsu og heilbrigði og er markmið þess að auka lífsgæði viðskiptavina sinna, veita persónulega, örugga og faglega þjónustu með breiðu úrvali lyfja, heilsutengdra vara og snyrtivara. Stefnt er að því að styðja við þessar áherslur og markmið, enda eru lyfjaverslanir lykil innviðir í hverju samfélagi.Félagið er á spennandi tímamótum með nýju eignarhaldi og munu leyfishafar taka virkan þátt í mótun félagsins til framtíðar.

Auglýsing birt22. apríl 2026
Umsóknarfrestur3. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Síðumúli 20, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar