

Lyfja leitar að lyfjafræðingum í Lyfjuliðið
Við leitum að sjálfstæðum og metnaðarfullum lyfjafræðingum sem vilja starfa í verslunum Lyfju með faglegu og öflugu teymi. Hjá okkur færð þú tækifæri til að sinna mikilvægu hlutverki í heilbrigðisþjónustu, þar sem þú veitir lyfjafræðilega ráðgjöf og getur haft áhrif á heilsu og líðan viðskiptavina.
Hlutverk og ábyrgð:
- Fagleg ráðgjöf um lyf og notkun þeirra
- Afgreiðsla lyfseðla eftir skýrum verkferlum í góðu samstarfi við teymið
- Stuðningur við öflugt teymi í apótekum og útibúum
- Umsjón með pöntunum og lyfjabirgðum
- Að tryggja góða þjónustuupplifun
Hvaða hæfni þarft þú að hafa?
- Háskólapróf í lyfjafræði og gilt starfsleyfi
- Ríka þjónustulund og góða samskiptafærni
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og lausnamiðaða hugsun
- Áreiðanleika, skipulag og drifkraft í fjölbreytt og faglegt teymisstarf
- Áhuga á heilbrigði og vellíðan
Starfið
Um flakkarastarf er að ræða þar sem þú getur starfað á mismunandi stöðum eftir áhuga og þörfum, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Starfið býður upp á fjölbreytni, sveigjanleika og tækifæri til að kynnast starfsemi Lyfju um land allt.
Hvers vegna Lyfja?
Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka lífsgæði og efla heilsu. Við rekum 42 verslanir hringinn í kringum landið auk Lyfju Heyrnar og lyfjaskömmtunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu, vinnur að vellíðan og tryggir lyfjaöryggi. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu og stöðuga nýsköpun.
Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Starfsfólk Lyfju nýtur góðra kjara á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1, sem öll eru hluti af Festi hf.
Nánari upplýsingar veitir Anna Sólmundsdóttir, lyfjafræðingur og sérfræðingur á mannauðssviði á [email protected]
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Íslenska
Enska









