
Lyfjalausnir - Starfsmaður í vélarsal
Við leitum að vandvirkum og áreiðanlegum einstaklingi til starfa í vélarsal Lyfjalausna. Starfið felst meðal annars í umsjón með sérhæfðum skömmtunarvélum, vélskömmtun lyfja og gæðaeftirliti.
Hlutverk og ábyrgð
- Umsjón með vélskömmtun lyfja og skömmtunarvélum
- Þrif og daglegt viðhald skömmtunarvéla
- Gæðaeftirlit með pökkunarefni og fullbúnum lyfjaskömmtum
- Eftirlit með lyfjabirgðum
- Að tryggja að gæðakröfum og góðum framleiðsluháttum í lyfjagerð (GMP) sé fylgt
Hvaða hæfni þarft þú að hafa?
- Vandvirkni, gott skipulag og nákvæmni í vinnubrögðum
- Getu til að vinna bæði sjálfstætt og með öðrum
- Tölvukunnáttu og áhuga á að vinna með sérhæfðan vélbúnað
- Menntun í lyfjatækni (æskilegt)
Starfið
Um er að ræða 100% starf og vinnutími er á opnunartíma Lyfjalausna, 08:00-16:00 alla virka daga.
Umsækjandi þarf að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og hafa náð 18 ára aldri.
Hvers vegna Lyfjalausnir?
Lyfjalausnir er mikilvægur hluti af starfsemi Lyfju og sinnir lyfjaskömmtun fyrir einstaklinga og stofnanir. Þar er unnið með sérhæfðar skömmtunarvélar þar sem lyf eru skömmtuð og undirbúin af mikilli nákvæmni og undir ströngu gæðaeftirliti.
Lyfja rekur 41 apótek og útibú víðs vegar um landið auk Lyfjalausna, Lyfju Heyrnar og Lyfju appsins. Hjá Lyfju starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu og tryggir lyfjaöryggi um land allt.
Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Starfsfólk Lyfju nýtur góðra kjara á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1, sem öll eru hluti af Festi hf.
Nánari upplýsingar veitir Stefán Páll Jónsson, forstöðumaður Lyfjalausna í síma 847-7791 og á [email protected]
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Íslenska
Enska










