

Lyfjafræðingur óskast
Lyf og heilsa óskar eftir lyfjafræðingi til starfa í apótekum félagsins á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri.
Um er að ræða fullt starf en hlutastarf kemur einnig til greina. Það er bæði um að ræða tímabundið starf í sumar og framtíðarstarf hjá fyrirtækinu.
Starfssvið:
Fagleg ábyrgð á afgreiðslu lyfja samkvæmt lögum og reglugerðum um lyfsölu.
Hæfniskröfur:
- Háskólapróf í lyfjafræði
- Gilt starfsleyfi
- Brennandi áhugi á þjónustu
- Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna í hóp
Hlutastarf eða fullt starf kemur til greina.
Umsókn merkt "lyfjafræðingur" ásamt ferilskrá sendist á [email protected]
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Stefánsdóttir rekstrar- og mannauðsstjóri.
Lyf og heilsa er framsækið þjónustufyrirtæki með starfsemi víðsvegar um landið. Fyrirtækið leggur metnað sinn í að beita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu á sviði heilsu, heilbrigði og lífsgæða.





