
Lyfjafræðingur - Faglegur forstöðumaður
Fastus óskar eftir að ráða öflugan einstakling til að bera ábyrgð á að starfsemi fyrirtækisins sé í samræmi við gildandi lög og reglugerðir þegar kemur að innflutningi, geymslu og dreifingu lyfja ásamt því að tryggja öryggi, gæði og rekjanleika lyfja. Viðkomandi kemur einnig til með að vinna að sölu og ráðgjöf tengt rannsóknarvörum fyrir heilbrigðisgeirann. Um 100% starf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fagleg ábyrgð á lyfjaheildsölu fyrirtækisins gagnvart Lyfjastofnun
- Tryggja öryggi, gæði og rekjanleika lyfja
- Samskipti við eftirlitsaðila í tengslum við úttektir
- Þátttaka í uppbyggingu, viðhaldi og endurskoðun gæðakerfis er viðkemur lyfjum og lækningartækjum
- Samskipti við heilbrigðisstarfsfólk, birgja og aðra hagaðila
- Ráðgjöf og sala á lækningatækjum
- Þjálfun og innleiðing lausna til viðskiptavina
- Undirbúningur og framkvæmd útboða
- Samskipti við heilbrigðisstarfsfólk, birgja og aðra hagaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meistaragráða á sviði lyfjafræði
- Reynsla af störfum innan lyfjageirans, heilbrigðisgeirans eða rannsóknarumhverfis
- Reynsla af gæðamálum, úttektum og samskiptum við eftirlitsaðila er kostur
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, metnaður og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Fastus er sölu- og þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í hágæðavörum og búnaði fyrir fyrirtæki og fagaðila. Fyrirtækið veitir heildstæða þjónustu með breiðu vöruframboði, faglegri ráðgjöf, uppsetningum og viðhaldi á innfluttum tækjabúnaði.
Hjá Fastus starfar fjölbreyttur og samstilltur hópur fagfólks þar sem lausnamiðað hugarfar, þverfaglegt samstarf og frumkvæði eru metin mikils. Mikilvægt er að starfsfólk geti lagað sig að síbreytilegu umhverfi. Innan félagsins starfar kraftmikið starfsmannafélag sem stuðlar að góðri liðsheild og jákvæðum starfsanda.
Allir áhugasamir eru hvattir til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsóknarfrestur er til og með 22. júlí 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veita Helga Birna Jónsdóttir ([email protected]) og Thelma Kristín Kvaran ([email protected]).
Íslenska
Enska