

Lyfjafræðingar - skoðum möguleikana saman
Viltu starfa á vinnustað þar sem fagþekking þín fær að njóta sín, þjónustan er persónuleg og þú ert hluti af metnaðarfullu og skemmtilegu teymi?
Við hjá Lyfju viljum heyra frá lyfjafræðingum sem hafa áhuga á fjölbreyttum tækifærum hjá okkur - hvort sem þú ert að leita að nýju starfi eða vilt kanna hvað gæti hentað þér til framtíðar.
Ekki er um eitt ákveðið starf, starfshlutfall eða staðsetningu að ræða. Við bjóðum upp á ólíka möguleika í apótekum Lyfju, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni, og viljum komast í samband við metnaðarfulla og þjónustulipra lyfjafræðinga sem vilja vera hluti af góðu teymi.
Hjá Lyfju leggjum við áherslu á faglega, hlýlega og lausnamiðaða þjónustu. Í okkar daglegu störfum sýnum við viðskiptavinum að þeir skipta okkur máli, veitum ráðgjöf og finnum lausnina - eða leiðina að henni. Þess vegna skiptir máli að hjá okkur starfi lyfjafræðingar sem hafa metnað fyrir faginu, ánægju af mannlegum samskiptum og vilja auka lífsgæði fólks á hverjum degi.
Hjá Lyfju færð þú tækifæri til að
- sinna mikilvægu hlutverki í heilbrigðisþjónustu og hafa jákvæð áhrif á heilsu og líðan viðskiptavina
- nýta fagþekkingu þína í ráðgjöf, fræðslu og þjónustu
- vinna með öflugu teymi þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, gott samstarf og jákvæðan starfsanda
- taka þátt í fjölbreyttum verkefnum í daglegum rekstri apóteks
- þróast í starfi með fræðslu, stuðningi og tækifærum til vaxtar
Við leitum að lyfjafræðingum sem
- hafa háskólapróf í lyfjafræði og gilt starfsleyfi
- hafa ríka þjónustulund og ánægju af samskiptum við fólk
- eru metnaðarfullir, lausnamiðaðir og áreiðanlegir
- kunna vel við teymisvinnu og vilja leggja sitt af mörkum í góðum starfsanda
- hafa áhuga á heilbrigði og vellíðan
Fjölbreytt tækifæri
Hjá Lyfju eru ólíkir starfsmöguleikar í boði fyrir lyfjafræðinga. Við viljum gjarnan eiga samtal við þig um hvað hentar þér, þinni reynslu og þínum áhuga.
Allar fyrirspurnir og umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og því hvetjum við þig til að sækja um sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Anna Sólmundsdóttir, lyfjafræðingur og sérfræðingur á mannauðssviði, á [email protected]
Hvers vegna Lyfja?
Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka lífsgæði og efla heilsu. Við rekum 42 verslanir hringinn í kringum landið auk Lyfju Heyrnar og lyfjaskömmtunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu, vinnur að vellíðan og tryggir lyfjaöryggi. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu og stöðuga nýsköpun.
Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Starfsfólk Lyfju nýtur góðra kjara á vörum og þjónustu hjá Lyfju, ELKO, Krónunni og N1, sem öll eru hluti af Festi hf.
Íslenska
Enska