Lyfja
Lyfja er eitt elsta einkarekna apótek landsins en fyrirtækið hóf starfsemi sína með opnun Lyfju Lágmúla 1996. Í dag rekur Lyfja rúmlega 40 apótek og útibú um allt land.
Hjá Lyfju starfa í kringum 350 starfsmenn sem eiga það sameiginlegt að vera umhugað um þína vellíðan. Við erum með ólíkan bakrunn og menntun s.s. lyfjafræðingar, lyfjatæknar, förðunarfræðingar, snyrtifræðingar, hjúkrunarfræðingar og viðskiptafræðingar. Meðalaldur starfsfólk er 40 ár og meðalstarfsaldur er rúm 5 ár.
Fagmennska skiptir okkur öllu máli og því er öflugt fræðslustarf fyrir starfsmenn til að auka þekkingu og færni. Það skiptir okkur máli að starfsmenn Lyfju fái að þróast og vaxa hjá okkur.
Haustið 2015 fékk Lyfja jafnlaunavottun VR og í febrúar 2018 fékk Lyfja síðan jafnlaunavottun Velfarnaðarráðuneytisins og var á meðal 20 fyrstu fyrirtækja á Íslandi til að öðlast þá vottun.
Lyfja Stykkishólmi - Sala og þjónusta, tímabundið starf
Viltu taka vaktina í sumar og fram til október?
Við leitum að starfsmanni í afleysingu tímabundið fram í október við sölu og afgreiðslu. Starfið felst í almennum afgreiðslustörfum og ráðleggingum til viðskiptavinum okkar um kaup á vörum verslunarinnar.Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt starf á líflegum vinnustað þar sem í boði eru samkeppnishæf laun og gott vinnuumhverfi.
Helstu verkefni:
• Almenn afgreiðslustörf
• Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
• Afgreiðsla á kassa
• Afhending lyfja gegn lyfseðli
• Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra
Hæfniskröfur:
• Rík þjónustulund
• Áhugi á mannlegum samskiptum
• Jákvæðni og gott viðmót
• Geta til að starfa undir álagi
• Reynsla af verslunarstörfum er kostur
• Reynsla af störfum í apóteki er kostur
Vinnutími er frá 12-18 á virkum dögum og æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1.júní 2024
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bjarne Omar Nielsen, lyfsali Lyfju Stykkishólmi, sími 438 1141 | bjarne@lyfja.is
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Auglýsing stofnuð19. apríl 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálakunnátta
ÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Aðalgata 1, 340 Stykkishólmur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)
Sölufulltrúi í verslun á Akureyri
Þór hf
Dagvinna vinnutími 11-17 alla virka daga
Gullnesti Ehf
Skemmtileg afgreiðslustörf á Suðurnesjunum
Heimkaup ehf.
Sölu og þjónustustarf – Hlutastarf og sumarafleysing
Barnið Okkar
Vilt þú vaxa með okkur? Fjölbreytt störf í boði!
IKEA
Icewear Þingvöllum óskar eftir starfsfólki
ICEWEAR
Sölufulltrúar óskast í Icewear á Húsavík
ICEWEAR
Sölufulltrúar óskast í Icewear
ICEWEAR
Starfsmaður í sorphirðu á Húsavík
Íslenska gámafélagið
Starfskraftur afgreiðslu á Akureyri
Frumherji hf
Sumarafleysing - Umsjónaraðili í Sambíóunum Álfabakka
Sambíóin
Handlaginn maður - Viðgerðarmaður
Heitirpottar.is