Lyfja
Lyfja
Lyfja

Lyfja Patreksfirði - Sala og þjónusta, sumarstarf

Við leitum að starfsmanni í afgreiðslu í Lyfju á Patreksfirði í sumar.
Um er að ræða starf við sölu og afgreiðslu á virkum dögum.
Starfið felst í ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum, afhendingu lyfja gegn lyfseðli, afgreiðslu á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra. Viðkomandi þarf að hafa góða þjónustulund, vera jákvæður og kurteis.

Helstu verkefni:
  • Almenn afgreiðslustörf
  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
  • Áfyllingar í verslun
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli
  • Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra

Hæfniskröfur:
  • Rík þjónustulund
  • Áhugi á mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og gott viðmót
  • Geta til að starfa undir álagi
  • Reynsla af verslunarstörfum er skilyrði
  • Reynsla af störfum í apóteki er kostur

Allir umsækjendur þurfa að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu.

Nánari upplýsingar veitir Elín Kristín Einarsdóttir, forstöðumaður útibús í síma: 456 1222 og Jónas Þór Birgisson, lyfsali í síma: 456 3009.

Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Auglýsing stofnuð17. apríl 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Aðalstræti 1, 450 Patreksfjörður
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar