
Lyfja
Lyfja er eitt elsta einkarekna apótek landsins en fyrirtækið hóf starfsemi sína með opnun Lyfju Lágmúla 1996. Í dag rekur Lyfja rúmlega 40 apótek og útibú um allt land.
Hjá Lyfju starfa í kringum 430 starfsmenn sem eiga það sameiginlegt að vera umhugað um þína vellíðan. Við erum með ólíkan bakrunn og menntun s.s. lyfjafræðingar, lyfjatæknar, förðunarfræðingar, snyrtifræðingar, hjúkrunarfræðingar og viðskiptafræðingar. Meðalaldur starfsfólk er 40 ár og meðalstarfsaldur er rúm 5 ár.
Fagmennska skiptir okkur öllu máli og því er öflugt fræðslustarf fyrir starfsmenn til að auka þekkingu og færni. Það skiptir okkur máli að starfsmenn Lyfju fái að þróast og vaxa hjá okkur.
Haustið 2015 fékk Lyfja jafnlaunavottun VR og í febrúar 2018 fékk Lyfja síðan jafnlaunavottun Velfarnaðarráðuneytisins og var á meðal 20 fyrstu fyrirtækja á Íslandi til að öðlast þá vottun.

Lyfja Egilsstöðum - Lyfjafræðingur
Við leitum að metnaðarfullum og sjálfstæðum lyfjafræðingi til starfa í Lyfju á Egilsstöðum. Starfið felst í afgreiðslu lyfjaávísana, lyfjafræðilegri þjónustu og upplýsingagjöf til viðskiptavina ásamt pöntunum á lyfjum og frágang í reseptúr.
Um er að ræða spennandi starf og tækifæri fyrir lyfjafræðing sem langar að skipta um umhverfi, komast nær náttúrunni og kynnast mannlífinu á Austurlandi.
Við bjóðum þér:
- Í heimsókn til Egilsstaða að skoða aðstæður og hitta tilvonandi samstarfsfélaga
- Stuðning við að finna húsnæði og húsnæðisstyrk fyrstu mánuðina
- Greiðslu á ferða- og flutningskostnaði
Hæfniskröfur
- Háskólapróf í lyfjafræði og gilt starfsleyfi.
- Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Áreiðanleiki, metnaður og skipulögð vinnubrögð.
Nánari upplýsingar veita Inga Sæbjörg Magnúsdóttir, lyfsali Lyfju Egilsstöðum, sími 471 1273 / [email protected] og Hildur Þórisdóttir, mannauðsstjóri, sími 530-3800 / [email protected].
Umsóknarfrestur er til og með 15. desember 2022.
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Auglýsing birt25. nóvember 2022
Umsóknarfrestur15. desember 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Kaupvangur 6, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (11)

QA On The Floor Specialist
Alvotech hf

Viðskiptastjóri – Novo
Vistor

QA Senior Specialist - Quality Events & Product Quality
Alvotech hf

Lyfjafræðing vantar til starfa í apótek okkar á Akureyri
Akureyrarapótek ehf.

Lyfsöluleyfishafi í Akureyrarapóteki Kaupangi
Akureyrarapótek ehf.

QC Analytical Shift Lead
Alvotech hf

Verkefnastjóri, gæðatrygging (Quality Assurance Project Manager)
Ísteka

Sérfræðingur, gæðatrygging (Quality Assurance Specialist)
Ísteka

Lyfjafræðingur - Apótekarinn
Apótekarinn

Lyfjafræðingur - Apótekarinn á Akureyri
Apótekarinn

Lyfjafræðingur óskast til starfa í Borgarnesi
Apótek Vesturlands ehf