

Lyf og heilsa - afgreiðsluflakkari
Við leitum að skipulögðum og sjálfstæðum starfsmanni með ríka og góða þjónustulund í starf við sölu og þjónustu í apótekum okkar á höfuðborgarsvæðinu. Starfið felst í almennri ráðgjöf og sölu á lausasölum lyfjum og öðrum vörum verslunarinnar.
Starfið er 100% starf með föstum vöktum frá kl 9/10-18 alla virka daga, þar sem viðkomandi hefur eina ákveðna starfsstöð en sinnir afleysingum í öðrum apótekum félagsins í forföllum.
Helstu verkefni?
- Afgreiðsla lausasölulyfja
- Afgreiðsla á bætiefnum og vítamínum
- Aðstoð við lyfjaafgreiðslu, skráningu og samsksipti við viðskiptavini
Hæfniskröfur:
- Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
- Ábyrgð, nákvæmni og fagmennska
- Áhugi á að starfa í apóteki við heilbrigðisþjónustu
- Góð íslenskukunnátta
Viðkomandi þarf að hafa bíl til umráða - greiddur er bifreiðastyrkur.
Hvað býður Apótekarinn?
- Frábær samvinna innan keðju apóteka
- Samkeppnishæf laun
- Góð kjör fyrir starfsmenn á vörum Apótekarans og Lyf og heilsu
- Öflugt starfsmannafélag
Nánari upplýsingar um starfið veita Sigrún Erlendsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum [email protected] og Eygló Kristinsdóttir, Verkefnastjóri eygló[email protected]
Um Lyf og heilsu:
Lyf og heilsa reka í dag 27 lyfjaverslanir undir merkjunum Lyf og heilsu, Apótekarinn, Garðsapótek og Apótek Hafnarfjarðar. Félagið rekur einnig 4 lyfjaútibú. Auk lyfjaverslana rekur félagið tvær gleraugnaverslanir undir merkinu Augastaður, SA Lyfjaskömmtun og Gamla apótekið, sem sérhæfir sig í framleiðslu á kremum, áburðum og olíum. Alls starfa um 300 manns hjá félaginu í um 175 stöðugildum.
Félagið leggur áherslu á heilsu og heilbrigði og er markmið þess að auka lífsgæði viðskiptavina sinna, veita persónulega, örugga og faglega þjónustu með breiðu úrvali lyfja, heilsutengdra vara og snyrtivara. Stefnt er að því að styðja við þessar áherslur og markmið, enda eru lyfjaverslanir lykil innviðir í hverju samfélagi.Félagið er á spennandi tímamótum með nýju eignarhaldi og munu leyfishafar taka virkan þátt í mótun félagsins til framtíðar.
Íslenska










