MAGNA Lögmenn
MAGNA Lögmenn
MAGNA Lögmenn

Löglærður fulltrúi óskast

MAGNA Lögmenn óska eftir að ráða löglærðan fulltrúa.

Umsækjandi þarf að hafa lokið meistaranámi í lögfræði, hdl.-réttindi eru æskileg. Verkefni eru á sviði almennrar lögfræðiráðgjafar, stjórnsýslu, eignaréttar, fjármunaréttar, samningsgerðar, o.fl. Umsækjandi þarf að búa yfir góðum samskiptahæfileikum, þjónustulund og geta unnið sjálfstætt. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi skulu berast til MAGNA Lögmenn ehf., Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, á tölvupóstfangið [email protected], eigi síðar en þriðjudaginn 19. janúar 2021. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál.

Menntunar- og hæfniskröfur
Meistaranám í lögfræði
Auglýsing birt11. janúar 2021
Umsóknarfrestur19. janúar 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar