
Lögfræðingur á sviði raforkueftirlits
Orkustofnun leitar að lögfræðingi með brennandi áhuga á sviði orkumála og stjórnsýslu til að nýta þekkingu sína til rýni, umsagna og ákvarðanatöku. Um er að ræða tímabundna ráðningu til eins árs, með möguleika á framlengingu, sem reynir á lögfræðilega kunnáttu og færni.
-
Lögfræðileg þátttaka og ábyrgð við úrlausn verkefna á sviði raforkueftirlits.
-
Lögfræðileg og stjórnsýsluleg rýni og gerð umsagna og álitsgerða.
-
Umsjón með margvíslegum stjórnsýslu- og kærumálum.
-
Vinna að verkefnum tengdum eftirliti með leyfisskyldri starfsemi og nýtingu raforku.
-
Þátttaka í þróunar- og umbótastarfi á regluverki.
-
Gerð tillagna og umsagna um lagafrumvörp og reglugerðir.
-
Aðkoma að og gerð umsagna og álitsgerða til annarra stjórnvalda.
-
Samskipti við stjórnvöld og fyrirtæki í tengslum við ofangreint.
-
Embættispróf, ML í lögfræði eða sambærilegt próf.
-
Þekking og starfsreynsla á sviði stjórnsýsluréttar.
-
Reynsla af gerð umsagna og álitsgerða.
-
Innsýn í laga- og regluumhverfi orkumála.
-
Þekking og starfsreynsla á sviði auðlinda- og orkumála er kostur.
-
Góð færni í framsögn og framsetningu texta bæði á íslensku og ensku.
-
Brennandi áhugi á orku- og umhverfismálum í víðu samhengi.
-
Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni.
-
Frumkvæði, sköpunargleði, drifkraftur, skilvirkni, nákvæmni og metnaður.
-
Áhugi á að vinna í og taka þátt í að móta lifandi og metnaðarfullt starfsumhverfi.



