

Lögfræðingur
Rapyd leitar af hæfum og reynslumiklum lögfræðingi til starfa á lögfræðisviði fyrirtækisins á Íslandi. Sviðið er hluti af stóru alþjóðlegu lögfræðiteymi Rapyd.
-
Sinna ýmsum lögfræðilegum verkefnum sem tengjast daglegri starfsemi Rapyd.
-
Veita ráðgjöf um lög og reglur sem snúa að starfsemi Rapyd, s.s. löggjöf um greiðslumiðlun og útgáfu rafeyris, persónuvernd, o.s.frv.
-
Samningagerð og skjalavinnsla hvers konar.
-
Veita lausna- og áhættumiðaða lögfræði ráðgjöf.
-
Meistaragráða í lögfræði
-
Að minnsta kosti fimm ára starfsreynsla hjá lögfræðistofu eða í fjármálakerfinu.
-
Reynsla í að leiða verkefni og leysa flókin lögfræðileg mál.
-
Framúrskarandi greiningarhæfni og lausnamiðuð hugsun
-
Hæfni og reynsla í að koma frá sér efni í ræðu og riti á íslensku og ensku.
-
Hæfni og reynsla við skjalavinnslu og gerð samninga.
-
Góður skilningur á lagalegri áhættu, stjórnarháttum fyrirtækja og lagaumhverfi fjármálafyrirtækja.









