TACTICA
TACTICA

Leitum að kerfisstjóra

Ert þú kerfisstjóri sem hefur mikla reynslu af uppsetningu og rekstri Microsoft lausna?

Þá erum við að leita að þér í teymið okkar í Fjörðinn!

Kerfisstjóri Tactica kemur til með að sinna innleiðingu og rekstri á Microsoft umhverfi viðskiptavina ásamt því að veita ráðgjöf í umbótarverkefnum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Innleiðing og uppsetning á Microsoft skýjalausnum

  • Þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina

  • Greining og úttektir á umhverfum viðskiptavina

  • Ráðgjöf og áætlanagerð varðandi úrbætur

  • Samskipti við viðskiptavini og eftirfylgni í þjónustumálum

  • Uppsetning og skjölun kerfishandbókar á umhverfi viðskiptavina

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þekking og reynsla af Microsoft 365

  • Þekking og reynsla af Windows Server og Active Directory er kostur

  • Microsoft vottun er kostur

  • Þjónustulund, jákvæðni og góð samskiptahæfni

  • Gagnrýnin- og lausnamiðuð hugsun

  • Frumkvæði og hæfni til að starfa sjálfstætt og í teymi

Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur
  • Farsímaáskrift og nettenging
  • Strangheiðarlegur heitur matur í hádeginu
  • Orkudrykkir eða sódavatn, við eigum það allt!
Auglýsing birt9. september 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
EnskaEnskaMjög góð
Staðsetning
Fjarðargata 15A, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar