

Leikskólinn Höfðaberg - Þroskaþjálfi
Leikskólinn Höfðaberg leitar að þroskaþjálfa til starfa
Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi? Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum?
Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er samrekinn leik- og grunnskóli sem vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar. Starfsemi skólans fer fram í tveimur byggingum þar sem leikskóladeildir þriggja til fimm ára barna eru staðsettar í útibúi skólans Höfðabergi, en 1.-10.bekkur í aðalbyggingu.
Þroskaþjálfi vinnur með kennurum og öðrum samstarfsaðilum að námi og þroska nemenda með þroskahamlanir. Hann annast þroska- og atferlisþjálfun nemenda og veitir ráðgjöf og leiðsögn til samstarfsaðila.
Ráðið er í stöðuna frá og með 9.ágúst 2021.











