Leikskólinn Bjartahlíð
Leikskólinn Bjartahlíð

Leikskólinn Bjartahlíð

Deildarstjóri óskast í fullt starf Vilt þú taka þátt í metnaðarfullu og skemmtilegu starfi hjá okkur í Björtahlíð?

Bjartahlíð er sex deilda leikskóli með um 110 börn og auglýsir eftir deildarstjóra í fullt starf. Leikskólinn starfar í tveimur húsum að Grænuhlíð 24 og Stakkahlíð 19 og er ungbarnadeildirnar staðsettar í Stakkahlíð 19.
Í leikskólanum leggjum við áherslu á Reggio Emilia hugmyndafræðina þar sem sköpun, rannsóknir og leikur eru í forgrunni. Við rekum einnig Bambahús þar sem börnin taka virkan þátt í ræktun, gróðursetja að vori og fylgjast með gróðrinum vaxa og dafna. Leikskólinn byggir á sterkum grunni fagfólks og leggjum við ríka áherslu á vellíðan starfsfólks, enda teljum við að ánægja í starfi skili sér beint til barnanna og skólastarfsins.

Deildarstjórar eru hluti af stjórnunarteymi leikskólans sem vinnur saman að þróun og eflingu skólastarfsins. Næsta vetur ætlum við að halda áfram með að dýpka þekkingu okkar í Reggio Emilia hugmyndafræðina í samstarfi við aðra leikskóla

Einkunnarorð leikskólans eru: GLEÐI – SAMVINNA – JÁKVÆÐNI


*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni og ábyrgð

• Annast uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra.

• Vera hluti af stjórnunarteymi leikskólans.

• Bera ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfs á deild.

• Annast og efla foreldrasamstarf á deild.

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntunar- og hæfniskröfur

• Leyfisbréf kennara.

• Reynsla af starfi á leikskólastigi.

• Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli.

• Góð samskiptahæfni.

• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

• Góð tölvukunnátta.

• Íslenskukunnátta sem samsvarar B2-stigi samkvæmt matskvarða um tungumálaviðmið.

Fríðindi í starfi

Fríðindi í starfi

• Menningarkort og bókasafnskort.

• Samgöngustyrkur.

• Sundkort.

• 36 stunda vinnuvika í fullu starfi.

• Heilsuræktarstyrkur. 

Auglýsing birt17. júní 2026
Umsóknarfrestur12. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Grænahlíð 24, 105 Reykjavík
Stakkahlíð 19, 105 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar