
Leikskólinn Akrasel á Akranesi leitar að leikskólakennurum eða vönum starfsmönnum
Framtíðarstarf, tímabundnar stöður, fullt starf og hlutastörf.
Leikskólakennarar óskast til starfa við leikskólann Akrasel, Ketilsflöt 2, 300 Akranes sem fyrst. Akrasel er sex til sjö deilda leikskóli. Leikskólinn er opinn frá klukkan 7:45 til 16:15 og skiptast starfsmenn á að vinna á vöktum.
Kjörorð okkar eru: Náttúra - Næring - Nærvera.
Akrasel er UNESCO og grænfána leikskóli sem leggur áherslu á umhverfismennt, hollt mataræði og vellíðan.
Í Akraseli ríkir góður starfsandi þar sem fagmennska, léttleiki og hjálpsemi er höfð að leiðarljósi.
Við erum að leita að heilsuhraustum, íslenskumælandi starfsmönnum.
- Vinnur samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara að uppeldi og menntun leikskólabarna.
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs undir stjórn deildastjóra
- Tekur þátt í starfi skólans og verkefnum eftir því sem skipulag og áherslur skólans segja til um
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
Leyfisbréf kennara - Kennaramenntun
Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
Jákvæðni, lipurð og góð færni í samskiptum
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Hreint sakavottorð
Nánari upplýsingar um starfið veita Anney Ágústsdóttir leikskólastjóri [email protected]
og Sigurrós Ingimarsdóttir staðgengill aðstoðarleikskólastjóra, [email protected]
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Íslenska










