

Leikskólastjóri óskast í leikskólann Fögrubrekku
Leikskólinn Fagrabrekka hóf starfsemi sína 22. desember 1976. Fagrabrekka er fjögurra deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum eins árs til sex ára. Starfað er eftir hugmyndafræði Reggio Emilia sem kennd er við samnefnda borg á Ítalíu.
Megin áhersla er lögð á skapandi starf í öllum listgreinum, einnig er lögð áhersla á lýðræðisleg vinnubrögð starfsfólks og barna og getu barna til að afla sér reynslu og þekkingar á sínum eigin forsendum. Tónlist og hreyfing er rauði þráðurinn í starfinu sem stuðlar að vellíðan og hefur í för með sér gleði og ánægju. Einkunnarorð leikskólans virðing, gleði og frumkvæði eru ávallt í forgrunni.
Leitað er að stjórnanda sem hefur góða hæfni í mannlegum samskiptum, er skipulagður, umbótadrifinn og hefur metnað til að ná árangri í starfi. Leikskólastjóri er leiðtogi skólans, veitir faglega forystu og býr yfir hæfni og frumkvæði til að skipuleggja skapandi leikskólastarf í samvinnu við starfsfólk leikskólans og menntasvið Kópavogsbæjar.
Nánari upplýsingar um leikskólann má finna á heimasíðunni okkar: https://fagrabrekka.kopavogur.is/
- Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi leikskólans og að unnið sé eftir aðalnámskrá leikskóla og skólanámskrá leikskólans
- Vera faglegur leiðtogi leikskólans sem deilir verkefnum og ábyrgð til starfsfólks í samræmi við skólanámskrá
- Rekstrarleg ábyrgð á að rekstur leikskólans sé innan ramma fjárhagsáætlunar
- Ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun
- Ábyrgð á foreldrasamstarfi
- Upplýsingamiðlun til deildarstjóra leikskóladeildar og menntasviðs Kópavogsbæjar
- Kynna sér nýjungar í starfi, miðla þekkingu til starfsfólks og hvetja til þróunar og nýbreytni í skólastarfi
- Kennaramenntun og leyfisbréf kennara
- Sérhæfð hæfni á leikskólastigi, sem felur í sér a.m.k. 90 ECTS námseiningar sem tengjast aðalnámskrá leikskóla og menntunarfræðum leikskóla
- Framhaldsmenntun (MA, MEd, MBA eða Diplóma að lágmarki) á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða
- Reynsla af starfi og stjórnun í leikskóla
- Reynsla af rekstri leikskóla og gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana æskileg
- Forystuhæfileikar og góð færni í mannlegum samskiptum
- Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi
- Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi
- Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig bæði í ræðu og riti
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
Íslenska










